Augsburg og Paderborn, lið þeirra Alfreðs Finnbogasonar og Samúels Kára Friðjónssonar, gerðu markalaust jafntefli í 28. umferð þýsku 1. deildarinnar í fótbolta í kvöld.
Alfreð og Samúel hafa báðir glímt við meiðsli og voru ekki með í kvöld. Ekkert nema fall blasir við Paderborn sem er í neðsta sæti með aðeins 19 stig, níu stigum frá næsta örugga sæti. Augsburg er í 12. sæti með 31 stig en ekki alveg laust úr fallhættu eftir 2-1 sigur Fortuna Düsseldorf á Schalke í kvöld. Düsseldorf er í 16. sæti með 27 stig en liðið sem endar í 16. sæti þarf að fara í umspil við liðið úr 3. sæti næstefstu deildar.
Hoffenheim komst upp um tvö sæti með 3-1 sigri á Köln og er í 7. sæti með 39 stig, þremur stigum frá Evrópusæti. Union Berlín og Mainz gerðu svo 1-1 jafntefli.