Börnum í sárri fátækt gæti fjölgað um 86 milljónir Heimsljós 28. maí 2020 12:53 Gunnisal Bein efnahagsleg áhrif COVID-19 faraldursins gætu leitt til fjölgunar barna í sárri fátækt um 86 milljónir fyrir árslok, samkvæmt greiningu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og Barnaheilla – Save the Children sem byggja á gögnum frá Alþjóðabankanum og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Samkvæmt greiningu samtakanna gætu 672 milljónir barna í lág- og meðaltekjuríkjum fallið niður fyrir mörk sárrar fátæktar áður en árið er á enda, langflest meðal þjóða í Afríku sunnan Sahara og Suður-Asíu. Aðeins með skjótum aðgerðum til verndar fjölskyldum vegna efnahagsþrenginga verður unnt að afstýra þessum afleiðingum heimsfaraldursins, segir í frétt frá UNICEF og Save the Children. Samtökin benda á að áhrifin séu tvíþætt, annars vegar skyndilegt tekjutap fjölskyldna sem hefur í för með sér að fólk hefur ekki efni á nauðsynjum eins og mat og vatni, og hins vegar tekjutap hins opinbera sem leiðir til þess að dregið er út nauðsynlegri grunnþjónustu við íbúa. „Heimsfaraldurinn leiðir til fordæmalausrar félagslegrar- og efnahagslegrar kreppu sem bitnar á fjölskyldum um heim allan,“ segir Henrietta Fore framkvæmdastjóri UNICEF. Hún segir að fjárhagslegir erfiðleikar fjölskyldna ógni margra ára framförum og samstillt átak þurfi til að forða því að fátækt fari á stig sem hafi ekki sést um áratugaskeið. „Börn verða hastarlega fyrir barðinu á efnahagslegum áhrifum COVID-19, þau eru mjög viðkvæm fyrir skammtíma hungri og vannæringu sem getur haft áhrif á þau ævilangt. Ef við bregðumst skjótt við er unnt að afstýra þeirri ógn sem faraldurinn gæti haft á fátækustu þjóðir heims þar sem börn eru í viðkvæmustu stöðunni,“ segir Inger Ashing framkvæmdastjóri Save the Children. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent