Íslenska úrvalsdeildin í LoL samþykkt formlega: „Leiðin í atvinnumennsku nú greiðfær“ Ólafur Hrafn Steinarsson skrifar 19. júní 2020 16:15 Heimsmeistaramótið í League of Legends 2019 MYND/Riot Games Inc.
Rafíþróttasamtök Íslands í samstarfi við Dreamhack og Riot Games tilkynntu í gær að íslenska úrvalsdeildin í League of Legends hefur verið samþykkt formlega sem deild í alþjóðlegu keppnisumhverfi League og Legends. Þetta þýðir að leiðin í atvinnumennsku í League of Legends getur legið í gegnum íslensk lið. Hingað til hafa íslenskir úrvalsleikmenn reynt að komast í erlend lið sem keppa í deildum í alþjóðlega keppnisumhverfinu. „Ég bara vona að allir átti sig á því hvað þetta er rosalega mikil viðurkenning fyrir það grasrótarstarf sem hefur verið unnið á Íslandi. Dreamhack er einn stærsti mótshaldari í rafíþróttum í heimi og það að þeir viðurkenni okkar mótshald er rosalegt. En við í Rafíþróttasamtökunum erum í skýjunum með þetta, því þetta þýðir að leikmenn eiga nú mun auðveldara með að komast á stóra sviðið. Það mætti segja að það sé orðið greiðfært í atvinnumenskuna í Lol,” segir Hafliði Örn Ólafsson, mótastjóri úrvalsdeildarinnar. En nú er leiðin greið og fyrsta og annað sæti í íslensku úrvalsdeildinni tryggir sæti í Telia Masters sem er forkeppni fyrir Norðurlandadeildina. Aron Ólafsson, framkvæmdarstjóri RÍSÍmynd/Hákon Bröder Lund Aron Ólafsson, framkvæmdarstjóri Rafíþróttasamtaka Íslands, er á sama máli og Hafliði. „Okkur er mikill heiður sýndur að fara í þetta samstarf. Hér er öflugt grasrótarstarf unnið og það er hægt að iðka League of legends hjá íþróttafélögum í dag. Ég hugsa að það sé bara tímaspursmál hvenær við förum að sjá fleiri íslenska atvinnumenn fyrir íslensk rafíþróttalið. Við höfum valið þá leið að bjóða upp á skipulagt starf fyrir ungmenni á Íslandi þar sem börnin fá þjálfun í að sinna líkama, sál og færni í sínum leik. Nú þegar eru hátt í 1000 iðkendur í rafíþróttum með skipulögðum hætti. Samstarf við Dreamhack og Riot er viðurkenning á því að þessi risastóru alþjóðalegu fyrirtæki trúa því að það sé þess virði að taka Ísland inn í alþjóðlega keppnisumhverfið með beinum hætti.” Þar sem Vodafonedeildinni lauk áður en samningar náðust verður keyrt opið aukamót sem hefst með tveim opnum forkeppnum dagana 10. til 12. júlí og 14. til 16. júlí. Efstu tvö liðin úr þessum forkeppnum takast svo á við liðin sem enduðu í efstu fjórum sætunum í Vodafonedeildinni dagana 17. til 19. júlí. Tvö efstu liðin fá þátttökurétt í Telia Masters sem er fyrsta þrepið af nokkrum í áttina að Heimsmeistaramótinu.
Rafíþróttir Vodafone-deildin Tengdar fréttir Dusty hefja leika á Norður-Evrópu mótinu í League of Legends og verða í beinni á BBC Íslenska rafíþróttaliðið Dusty sem skapað hefur sér sérstöðu í rafíþróttum hér á landi mun hefja leik í stærstu League of Legends deild Norður-Evrópu í dag. NLC eða Northern League of Legends Championship er atvinnumannadeild í League of Legends sem er vinsælasti tölvuleikur í heimi. 17. júní 2020 13:30 „Held að rafíþróttir verði stærri en handbolti“ Fylkismennirnir Bjarni Þór Guðmundsson og Eðvarð Þór Heimisson eru klárir í úrslitaleik Stórmeistaramóts Vodafone-deildarinnar í CS:GO þar sem þeir mæta FH-ingum. 6. júní 2020 12:30 Fylkir hirti gullið í Stórmeistaramótinu Fylkismenn stóðu upp sem sigurvegarar í Stórmeistaramótinu en þetta er stærsti bikar Íslands í rafíþróttum. 7. júní 2020 22:30 Mest lesið Ræddu brotthvarf Davíðs: „Þetta er eins og köld vatnsgusa“ Íslenski boltinn Davíð Smári hissa: „Sökudólgur sjálfur með því að setja viðmiðið mjög hátt“ Íslenski boltinn „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Körfubolti Jón Þór ráðinn í björgunaraðgerðir hjá Vestra Íslenski boltinn Aftur tapar Liverpool Fótbolti Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 3-2 | Aftur mistókst Blikum að tryggja titilinn Íslenski boltinn Fengu nóg af skeytingarleysi og mismunun Íslenski boltinn Héldu vöku fyrir leikmönnum Liverpool Fótbolti Uppgjör: Víkingur - Valur 3-0 | Sannfærandi heimasigur í rigningunni Íslenski boltinn Amorim að verða uppiskroppa með afsakanir Enski boltinn Fleiri fréttir Veittist að sautján ára mótherja sínum og hreytti í hann fúkyrðum Sjá meira
Dusty hefja leika á Norður-Evrópu mótinu í League of Legends og verða í beinni á BBC Íslenska rafíþróttaliðið Dusty sem skapað hefur sér sérstöðu í rafíþróttum hér á landi mun hefja leik í stærstu League of Legends deild Norður-Evrópu í dag. NLC eða Northern League of Legends Championship er atvinnumannadeild í League of Legends sem er vinsælasti tölvuleikur í heimi. 17. júní 2020 13:30
„Held að rafíþróttir verði stærri en handbolti“ Fylkismennirnir Bjarni Þór Guðmundsson og Eðvarð Þór Heimisson eru klárir í úrslitaleik Stórmeistaramóts Vodafone-deildarinnar í CS:GO þar sem þeir mæta FH-ingum. 6. júní 2020 12:30
Fylkir hirti gullið í Stórmeistaramótinu Fylkismenn stóðu upp sem sigurvegarar í Stórmeistaramótinu en þetta er stærsti bikar Íslands í rafíþróttum. 7. júní 2020 22:30