Hin risavaxna bandaríska streymisveita Netflix mun kosta Söngvakeppnina hjá Ríkisútvarpinu ohf. Samkvæmt heimildum Vísis er um að ræða kostunarsamning sem slagar hátt í tíu milljónir.
Eins og Vísir hefur greint frá eru áform uppi innan Netflix að koma sér betur fyrir á markaði hérlendis. Nú þegar eru umsvif fyrirtækisins veruleg en um níutíu prósent Íslendinga á aldrinum 19 til 29 ára hafa aðgang að efnisveitunni.
Netflix framleiðir vísindasöguþáttaröð leikstjórans Baltasars Kormáks og þá framleiðir Netflix mynd Will Ferrells um Eurovison sem að hluta til var tekin upp á Húsavík. Ekki liggur fyrir hvort það verkefni hafi haft áhrif á að þessi kostunarsamningur var gerður. Vísir náði ekki í Skarphéðinn Guðmundsson dagskrárstjóra á Ríkisútvarpinu til að spyrja hann nánar út í þennan athyglisverða bræðing.
Því þetta samstarf Ríkisútvarpsins ofh. og Netflix er allrar athygli vert meðal annars í ljósi þess að stjórnvöld hafa verið að leita leiða til að bæta rekstrarumhverfi fjölmiðla. Ein hugmynda sem fram hefur komið í þeim efnum er að ríkisfjölmiðillinn RÚV ohf. verði tekinn af auglýsingamarkaði.
Rekstrarvanda fjölmiðla má meðal annars rekja til erfiðrar samkeppni við stórar alþjóðlegar efnisveitur og samfélagsmiðla svo sem Facebook, YouTube, Instagram, Twitter og svo sækir Netflix að áskriftarmiðlum svo sem Stöð 2 með framboði á efni og þá Ríkisútvarpinu einnig.
Netflix kostar Eurovision Ríkisútvarpsins

Tengdar fréttir

Netflix hyggst koma sér betur fyrir á Íslandi
MediaCom birtingarhús Netflix á Íslandi.

Baltasar fékk hugmyndina að Kötlu við fréttaáhorf í Bandaríkjunum
Kaup Netflix á Kötlu er stærsta fjárfesting sem orðið hefur í íslenskri kvikmyndagerð. Um gífurlega innspýtingu er að ræða í iðnaðinn því tökulið og leikarar verða meira og minna Íslendingar. Um jarðbundinn vísindaskáldskap er að ræða þar sem söguhetjurnar þurfa að kljást við dularfulla hluti sem leysast úr læðingi við Kötlugos.

Vonar að húsvískar stjörnur fái að láta ljós sitt skína á hvíta tjaldinu
Það stendur mikið til á Húsavík þessa dagana en um tvö hundruð og fimmtíu manns, sem með einum og öðrum hætti koma að gerð kvikmyndarinnar, halda nú til Húsavíkur og þá má sjá leikara á heimsmælikvarða, á borð við sjálfan Will Ferrell og Pierce Brosnan, á rölti í bænum.

Vinsælasta efni Netflix á árinu
Netflix hefur gefið út hvað var vinsælasta efnið á veitunni árið 2019. Kvikmyndin Murder Mystery með Adam Sandler og Jennifer Aniston virðist hafa notið mikilla vinsælda á árinu.