Lítill ójöfnuður færir Ísland upp í 2. sæti á lífskjaralista Heimsljós kynnir 29. janúar 2020 10:45 gunnisal
Að teknu tilliti til þess hversu lítill ójöfnuður er hér á landi telst Ísland vera í öðru sæti á lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna á eftir Noregi. Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) birti fyrir nokkru lífskjaralista fyrir árið 2010 – í skýrslunni Human Development Report – en ójöfnuður er þema skýrslunnar. Á lífskjaralistanum er Ísland í 6. sæti – og hækkar úr 12. sæti frá árinu áður – en samkvæmt sérstökum lista þar sem áhrif ójöfnuðar á lífskjör er reiknaður út færist Ísland upp í annað sætið. Það sýnir að ójöfnuður er minni í íslensku samfélagi en flestum öðrum. Þessa dagana er verið að kynna skýrslu UNDP um þróun lífskjara í borgum víða um heim. Í þessari viðamiklu skýrslu er að finna gífurlegt magn tölfræðilegra gagna, ekki síst um áhrif ójafnaðar á þróun, mannréttindi og lífskjör einstaklinga í nærri öllum ríkjum heims. Því er birtur nýr mælikvarði um þróun lífskjara með hliðsjón af mældum ójöfnuði í fyrsta sinn. Þrátt fyrir góðan árangur við að minnka sárafátækt á alþjóðavísu er sá árangur mjög misjafn, ekki síst vegna ójafnaðar. Mismunandi ástæður skýra þennan ójöfnuð, svo sem tækifæri til menntunar, kynjamisrétti og aðgangur að heilbrigðisþjónustu. Niðurstaðan er hins vegar oft sú sama, að einstaklingar festist í fátækt og skorti tækifæri til að bæta lífskjör sín. Skýrslan mikilvægt innlegg í umræðu um mikilvægi þess að minnka ójöfnuð um allan heim en Sameinuðu þjóðirnar hafa í auknum mæli verið að benda á neikvæð áhrif ójafnaðar á möguleika einstaklinga og samfélaga um allan heim og þannig á möguleika okkar að ná heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Íbúar Níger, Miðafríkulýðveldisins, Tjad og Suður-Súdans búa við verstu lílfskjörin á jörðinni. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent