Það þykir tíðindum sæta að Erling Braut Håland skori ekki þegar hann stígur inn á fótboltavöll.
Það gerðist í kvöld þegar Borussia Dortmund laut í lægra haldi fyrir Bayer Leverkusen, 4-3.
Håland skoraði átta mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum með Dortmund en hann var ekki á skotskónum í kvöld.
Kevin Volland kom Leverkusen yfir á 20. mínútu en Mats Hummels jafnaði tveimur mínútum síðar. Emre Can kom Dortmund yfir með sínu fyrsta marki fyrir félagið á 33. mínútu. Volland jafnaði með sínu öðru marki tíu mínútum síðar og staðan í hálfleik var jöfn, 2-2.
Raphaël Guerreiro kom Dortmund aftur yfir á 65. mínútu en Leverkusen var sterkari undir lokin.
Leon Bailey jafnaði á 81. mínútu og aðeins mínútu síðar skoraði Lars Bender sigurmark Leverkusen.
Leverkusen er í 5. sæti deildarinnar með 37 stig, tveimur stigum og tveimur sætum á eftir Dortmund.
Håland mistókst að skora þegar Dortmund tapaði í markaleik
