Ný kynslóð Kia Sorento verður frumsýnd á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf í byrjun mars.
Kia Sorento er flaggskip sportjeppa suður-kóreska bílaframleiðandans og hefur verið mjög vinsæll hér á landi sem og víða erlendis undanfarin ár. Þetta er fjórða kynslóð þessa stóra sportjeppa.
Nýr Sorento er mjög mikið breyttur í hönnun miðað við forverann eins og sjá má á fyrstu myndum af nýja jeppanum sem Kia sendi frá sér í dag. Sorento kemur nú með nýjum undirvagni úr smiðju Kia sem mun bæta enn frekar aksturseiginleika bílsins.

Kia Sorento kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2002 og hefur selst í meira en þremur milljón eintaka á heimsvísu.
Þá verður nýja kynslóð sportjeppans í boði með Hybrid tækni sem hefur þegar verið kynnt í þremur af bílgerðum Kia; XCeed, Niro og Optima. Sorento verður einnig búinn nýjasta tæknibúnaði m.a. með háþróuðum aksturs- og öryggiskerfum sem og fyrir afþreyingu.
Sorento er stærsti bíll Kia og býður upp á mjög mikið pláss fyrir farþega og farangur. Sorento er góður fyrir íslenskar aðstæður enda búinn fjórhjóladrifi.