Auglýst eftir ráðgjöfum í alþjóðlegt þróunarsamstarf Heimsljós 21. ágúst 2020 10:26 Gunnisal Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir ráðgjöfum, jafnt fyrirtækjum sem einstaklingum, til að sinna verkefnum á sviði fiskimála, jafnréttismála, landgræðslu og sjálfbærrar orku í alþjóðlegu þróunarsamstarfi. Þessir málaflokkar eru áherslusvið í íslenskri þróunarsamvinnu og tæknileg aðstoð á þessum sviðum er hluti af þróunarframlagi Íslands. Ekki er um skilgreind verkefni að ræða á þessu stigi heldur er um ráðgjafalista og mun umfang og eðli verkefna ráðast af eftirspurn frá samstarfsaðilum, svo sem alþjóðastofnunum. Ríkiskaup hefur umsjón með skráningu á ráðgjafalistana og nú eru fimm auglýsingar fyrir ráðgjafaskráningu aðgengilegar á http://utbodsvefur.is/. Þau sérfræðisvið sem sérstaklega er óskað eftir, mótast af framboði og eftirspurn frá samstarfsaðilum. Einungis er óskað eftir sérfræðingum sem uppfylla skilyrði A og B ráðgjafa: A: Ráðgjafi með háskólapróf í viðeigandi grein skv. sérfræðisviði og meira en 20 ára reynslu í faginu. B: Ráðgjafi með háskólapróf í viðeigandi grein skv. sérfræðisviði og meira en 10 ára reynslu í faginu. Verkefnin verða unnin samkvæmt skilgreindum beiðnum og verklýsingum frá samstarfsaðilum, svo sem verkefnisteymum Alþjóðabankans eða öðrum alþjóðlegum samstarfsstofnunum. Verk geta verið af öllum stærðargráðum en búist er við að algengt verði að verkefni verði á bilinu 50-200 tímar. Utanríkisráðuneytið heldur utan um skrá áhugasamra ráðgjafa og fyrirtækja og gerir staðlaðan samning um verkefni beint við viðkomandi fyrirtæki/einstakling. Skráning á listann tryggir ekki að viðkomandi fyrirtæki/ráðgjafi fái verkefni. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Jafnréttismál Orkumál Mest lesið Skvísur geti virkað sem hálfgerðir þroskaþjófar Innlent Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Innlent Heitavatnslaust á Suðurnesjum og rafmagnslaust víða um land Innlent Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Erlent Skreppiferðir í Jysk meðal þess sem ráðgjafi rukkaði fyrir Innlent Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Erlent Misvægi atkvæða bitnar mest á Kraganum Innlent „Ég tel ekki tilefni til að íhuga stöðu mína“ Innlent Mildari spá í kortunum Veður Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Jafnréttismál Orkumál Mest lesið Skvísur geti virkað sem hálfgerðir þroskaþjófar Innlent Ráðgjafinn ráðinn í tímabundið starf eftir dýra skreppitúra Innlent Heitavatnslaust á Suðurnesjum og rafmagnslaust víða um land Innlent Hljóp út í örvæntingu „með lífið í poka“ Erlent Skreppiferðir í Jysk meðal þess sem ráðgjafi rukkaði fyrir Innlent Réttað yfir tíu sem segja frönsku forsetafrúna vera karlmann Erlent Misvægi atkvæða bitnar mest á Kraganum Innlent „Ég tel ekki tilefni til að íhuga stöðu mína“ Innlent Mildari spá í kortunum Veður Erfitt að segja til um viðbrögð við nýjum faraldri miðað við Covid-viðbrögð Innlent