Íslenska kvikmyndin Þorsti, sem lýst var sem gay vampírumynd, vann til tvennra verðlauna á bandarísku hryllingsmyndahátíðinni Screamfest, þeirri stærstu þar í landi.
Bæði verðlaunin voru fyrir brellur. Geir Njarðarson fékk verðlaun fyrir brelluförðun (e. special effects make up) og Atli Þór Einarsson fékk verðlaun fyrir sjónrænar brellur (e. visual effects).
Screamfest er stærsta og elsta hryllingsmyndahátíð í Bandaríkjunum og vel þekkt sem slík. Þar eru til sýnis nýjar hryllingsmyndir, bæði bandarískar og alþjóðlegar.
Kvikmyndaverin velja einnig að frumsýna stórar hryllingsmyndir á hátíðinni, á borð við Paranormal Activity, The Grudge, The Human Centipede og Let The Right One In. Það er því greinilegt að Þorsti er komin í góðan félagsskap.
Einstakt verkefni
Tilurð kvikmyndarinnar Þorsti var einstök á íslenskan mælikvarða og þó víða væri leitað. Myndin var lokahnykkurinn á sjónvarpsþáttaröðinni Góðir landsmenn, sem sýnd var á Stöð 2 í fyrra.
Þættirnir fjölluðu um Steinda sem reyndi að þroskast í starfi sínu sem sjónvarpsmaður en það tókst ekki betur en svo að hann flæktist inn líf eins viðmælandans sem er aukaleikari. Í framhaldinu var hann kominn á fullt í framleiðslu á kvikmynd í fullri lengd með aukaleikaranum og leikhópnum hans.
Framleiðsla þáttanna og kvikmyndarinnar var mikið púsluspil. Gaukur Úlfarsson leikstjóri fór ítarlega yfir þetta flókna verkefni í þættinum Á bak við tjöldin hér á Vísi í vetur. Hægt er að hlusta á hann hér fyrir ofan.
Á myndunum hér fyrir neðan má síðan meðal annars sjá myndir frá gerð myndarinnar þar sem brellum þeirra Atla Þórs Einarssonar og Geirs Njarðarsonar bregður meðal annars fyrir.
Hægt er að sjá bæði kvikmyndina Þorsta og þættina Góðir landsmenn á Stöð 2 Maraþon.








