Spurning síðustu viku tengdist mismunandi þörf okkar á því hversu mikið við viljum vita um fortíð maka okkar í ástarmálum.
Þegar fólk sem byrjar saman eftir unglingsárin eru yfirgnæfandi líkur á því að báðir aðilar eigi sér einhverja forsögu í ástarmálum. Hvort sem um ræðir fyrri sambönd eða bólfélaga er misjafnt hverju fólk vill deila eða hvað fólk vill vita.
Samkvæmt niðurstöðunum er meirihluti lesenda Vísis forvitinn um fyrri ástarmál makans en rúmlega þrjúþúsund manns tóku þátt í könnuninni.
Nákvæmari niðurstöður er hægt að sjá hér fyrir neðan.
*
Niðurstöður
Já - 31%
Já, en bara ef það var alvarlegt - 11%
Já, en fer eftir aðstæðum - 18%
Nei - 40%
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.