Guðmundur Guðmundsson hefur valið þá 35 leikmenn sem koma til greina í HM-hóp Íslands sem fer til Egyptalands í janúar.
HM karla í handbolta fer fram 13.-31. janúar. Ísland er í riðli með Portúgal, Alsír og Marokkó og á sinn fyrsta leik gegn Portúgölum fimmtudagskvöldið 14. janúar.
Athygli vekur að vinstri hornamaðurinn Stefán Rafn Sigurmannsson, sem glímt hefur við meiðsli, er ekki í hópi þeirra 35 manna sem gjaldgengir eru á HM. Alexander Petersson, sem varð fertugur í sumar, er hins vegar í hópnum og gæti spilað líkt og hann gerði á EM í janúar.
Óskar Ólafsson og Elvar Ásgeirsson eru einu leikmennirnir í stóra hópnum sem ekki hafa leikið A-landsleik.
Reikna má með að 22-24 leikmenn verði í æfingahóp sem kemur saman í janúar en að lokum verða það 20 leikmenn sem fara til Egyptalands.
35 manna hópinn má sjá hér að neðan, landsleiki þeirra og mörk:
Alexander Petersson |
Rhein-Necker Löwen |
181 |
719 |
Arnar Freyr Arnarsson |
MT Melsungen |
52 |
69 |
Arnór Þór Gunnarsson |
Bergischer |
114 |
332 |
Aron Pálmarsson |
FC Barca |
149 |
579 |
Atli Ævar Ingólfsson |
Selfoss |
12 |
11 |
Ágúst Elí Björgvinsson |
KIF Kolding |
31 |
0 |
Bjarki Már Elísson |
Lemgo |
71 |
165 |
Björgvin Páll Gústavsson |
Haukar |
230 |
13 |
Daníel Freyr Andrésson |
GUIF |
2 |
0 |
Daníel Þór Ingason |
Ribe Esbjerg HH |
31 |
9 |
Elliði Snær Viðarsson |
Gummersbach |
6 |
4 |
Elvar Ásgeirsson |
Stuttgart |
0 |
0 |
Elvar Örn Jónsson |
Skjern |
35 |
92 |
Gísli Þorgeir Kristjánsson |
Magdeburg |
24 |
32 |
Grétar Ari Guðjónsson |
Cavial Nice |
7 |
0 |
Guðmundur Árni Ólafsson |
Afturelding |
13 |
25 |
Guðmundur Hólmar Helgason |
Selfoss |
25 |
6 |
Gunnar Steinn Jónsson |
Ribe Esbjerg |
42 |
36 |
Hákon Daði Styrmisson |
ÍBV |
6 |
23 |
Janus Daði Smárason |
Göppingen |
18 |
18 |
Kári Kristján Kristjánsson |
ÍBV |
145 |
178 |
Kristján Örn Kristjánsson |
Pays d'Aix Universite Club |
7 |
13 |
Magnús Óli Magnússon |
Valur |
6 |
6 |
Oddur Grétarsson |
Balingen-Weilstetten |
18 |
31 |
Orri Freyr Þorkelsson |
Haukar |
1 |
1 |
Óðinn Þór Ríkharðsson |
TTH Holstebro |
14 |
44 |
Ólafur Andrés Guðmundsson |
IFK Kristianstad |
123 |
230 |
Ómar Ingi Magnússon |
Magdeburg |
47 |
129 |
Óskar Ólafsson |
Drammen |
0 |
0 |
Sigvaldi Björn Guðjónsson |
Vive Tauron Kielce |
28 |
54 |
Sveinn Jóhannsson |
SönderjyskE Håndbold |
9 |
15 |
Teitur Örn Einarsson |
IFK Kristianstad |
18 |
18 |
Viggó Kristjánsson |
Stuttgart |
11 |
21 |
Viktor Gísli Hallgrímsson |
GOG Håndball |
18 |
0 |
Ýmir Örn Gíslason |
Rhein-Neckar Löwen |
42 |
20 |