Tiger hætti með fyrstu kærustunni með því að senda henni bréf Anton Ingi Leifsson skrifar 11. janúar 2021 23:01 Tiger á Mastersmótinu á síðasta ári. Nú er komin út ný heimildarmynd um líf kappans. EPA-EFE/ERIK S. LESSER HBO frumsýndi nýja mynd um Tiger Woods á sunnudaginn en hún heitir einfaldlega Tiger. Myndinni er skipt í tvo hluta. Fyrri hlutinn var sýndur á HBO sunnudaginn 10. janúar og seinni hlutinn viku síðar.
Í fyrri hlutanum var fjallað um æsku Tigers og hvernig hann varð að besta kylfingi heims. Þar er einnig farið yfir sigursælan feril hans en einnig persónulega hluti. Í seinni hlutanum er síðan farið yfir árin eftir að heimur Tiger Woods hrundi þegar upp komst um annað líf hans á bak við tjöldin. Þar er fjallað um skilnaðinn, bakmeiðslin og svo endurkomu hans á Mastersmótinu 2019. Það kom margt og mikið fram í fyrsta þættinum en þar á meðal kom fram að Tiger hafi hætt með sinni fyrstu kærustu, Dina Parr, með því að senda henni bréf. Hún hafi ekki passað inn í framtíðarplön Tigers og foreldra hans. „Earl og Tida [foreldrar Tigers] höfðu hugmyndir um hvernig hann ætti að vera. Og ég held að það hafi valdið þeim áhyggjum að ég passaði ekki inn í þeirra framtíðarplön,“ sagði Dina sjálf áður en hún las upp bréfið. A primer on golf moments you won't see in HBO's Tiger Woods documentary https://t.co/nQbNGBqCQr— L.A. Times Sports (@latimessports) January 11, 2021 „Dina, ég er að skrifa þetta til þín því ég og foreldrar mínir viljum aldrei tala við þig aftur. Mér finnst þú og fjölskylda þín vera að nota mig. Ég vona að þú eigir gott líf. Ég veit að þetta er óvænt en mér finnst þetta það rétta. Sjáumst, Tiger,“ las hún upp eftir Tiger. Aðspurð um viðbrögð hennar svaraði hún: „Ég las þetta aftur og aftur í höfðinu og ég hugsaði um að keyra yfir til hans en svo varð ég bara að hugsa eins og hann væri dauður. Ég þurfti að gleyma honum og halda áfram með lífið, eins og hann væri ekki hérna.“ Diana Parr og Tiger Woods voru saman í þrjú ár. Hún segir einnig í myndinni að hún var sú einasta sem lét hann vita af því að lífið væri meira en bara golf. The golfer's first true love, Dina Parr, revealed how he was once closed-off from the world as a twenty-something. Women who partied with him in Las Vegas also appear. #TigerWoods https://t.co/XPbzjqLCGZ— Entertainment Insider (@EntInsider) January 7, 2021
Golf Mest lesið „Held að hann sé hundfúll að vera ekki í liðinu“ Handbolti Segja Ronaldo hafa misst af leik til að sleppa við svipuhögg Fótbolti Segir það þjakandi og einmanalegt að vera hjá Man United Enski boltinn Barn beit dómarann á mjög viðkvæman stað og leik var aflýst Fótbolti Hafnarfjörður keypti Skessuna fyrir 1.190 milljónir Fótbolti Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Ofurtölvan setur Liverpool á toppinn og Arsenal ofar Real Madrid Fótbolti „Eins manns dauði er annars brauð“ Handbolti „Brjálæðisleg orka“ Hákonar og einstakt samband við David Fótbolti Íranir ætluðu ekki að húðstrýkja Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Fór tvisvar sinnum holu í höggi á sama hringnum Hlógu að Tiger: Eitt það vandræðalegasta á ferlinum Tiger Woods dregur sig úr keppni á sínu eigin móti Tiger snýr aftur á PGA-mótaröðina Opna bandaríska fyrsta risamótið til að opna dyrnar fyrir LIV Tiger syrgir móður sína Sjá meira