Stundum ákveður fólk að báðir aðilar setji upp hringa þegar sameiginleg ákvörðun er tekin um að stefna að giftingu. En þegar bónorð er óvænt borið upp er það yfirleitt hefðin að vonbiðillinn gefi maka sínum trúlofunarhring. Þó svo að áður fyrr hafi verið talað um að trúlofunartímabilið væri ekki mikið lengra en ár þá er allur gangur á því í dag. Stundum er fólk trúlofað í langan tíma fyrir giftingu og í sumum tilvikum er trúlofunin látin nægja.
En í þessum tilvikum þegar trúlofun slitnar þá kemur upp spurningin með trúlofunarhringinn.
Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar skiptast lesendur nokkurn veginn í tvær fylkingar. Rétt rúmlega helmingur svarar því að hring eigi skila aftur til vonbiðils meðan tæplega helmingur er því ósammála.
Eins og með svo margt varðandi sambandsslit og tilfinningamál er ekki hægt að segja að eitt sé rétt og annað ekki. Það er því mikilvægast að fólk beri virðingu fyrir óskum og tilfinningum hvors annars og reyni eftir fremsta megni að komast að samkomulagi.
Niðurstöður*
Manneskjan sem fær hring heldur hringnum - 45%
Manneskjan sem fær hring skilar honum aftur til vonbiðils 55%
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.