Já-fólkið hans Gísla Darra tilnefnd til Óskarsverðlauna Kolbeinn Tumi Daðason og skrifa 15. mars 2021 13:26 Já-fólkið er gamansöm, hálf-þögul teiknimynd um fjötra vanans. Já-fólkið Stuttmyndin Já-fólkið eftir Gísla Darra Halldórsson hefur verið tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta stutta teiknimyndin, í flokknum „Animated Short film“. Þetta var tilkynnt rétt í þessu í beinni útsendingu Óskarsverðlaunaakademíunnar.
Gísli Darri Halldórsson leikstjóri myndarinnar skrifaði einnig handritið og sá um klippingu. Myndin er á íslensku en með enskum texta. Inn á myndina tala meðal annars Helga Braga Jónsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir, Jón Gnarr, Kristján Franklín Magnús, Sigurður Sigurjónsson og Þorvaldur Davíð Kristjánsson. Þessar fimm eru tilnefndar í flokknum. „Já-fólkið er teiknimynd sem fjallar um íbúa í ónefndri blokk sem vakna einn vetrarmorgun og rútína hversdagsleikans tekur við - hvort sem það er vinnan, skólinn eða heimilislífið. Við fylgjum fólkinu í einn sólahring en þegar líða tekur á daginn fer lífsmunstur hvers og eins að kristalla persónurnar (dugnaður, leti, fíkn og ástríða). Um kvöldið eru allir komnir heim og um blokkina ómar ýmist ástaratlot eða æpandi þögn sambandsleysis. Að lokum þarf hver og einn að horfast í augu við gjörðir dagsins. Þetta er gamansöm, hálf-þögul teiknimynd um fjötra vanans,“ segir um myndina á vef Kvikmyndamiðstöðvar. Hér að neðan má sjá Gísla segja frá myndinni á kvikmyndahátíð í Stuttgart í fyrra og svo í framhaldinu brot úr myndinni. Teiknimyndin er átta mínútur og 35 sekúndur og var frumsýnd á Minimalen Short Film Festival þann 24. janúar í fyrra. Framleiðendur eru Arnar Gunnarsson og Gísli Darri fyrir framleiðslufyrirtækið Caoz.
Óskarinn Kvikmyndagerð á Íslandi Íslendingar erlendis Mest lesið „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Tónlist Rétturinn sem fær konurnar niður á hnén Lífið Slær á létta strengi í þinginu og afhenti ráðherra „Gyllta tappann“ Lífið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Fyrst skíði og nú golf Lífið Brady og Bloom sagðir sólgnir í Sweeney Lífið Árin hjá Spotify ævintýri líkust Lífið Stjörnulífið: Suðræn sæla og seiðandi kroppar Lífið Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Tónlist Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Fleiri fréttir Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira