Íslenska kvennalandsliðið fagnaði sætum sigri á Grikklandi í undanriðli í forkeppni HM í handbolta sem fer fram í Skopje í Norður- Makedóníu. Lokatölur leiksins 31-19 fyrir Íslandi.
Eftir ansi erfiðan leik í gær þar sem Steinunn Björnsdóttir meiddist og ljóst að hún yrði ekki meira með mættu stelpurnar tvíefldar til leiks í dag.
Tóninn var settur á fyrstu mínútum fyrri hálfleiks. Íslenska liðið mættu mun ákveðnari og augljóslega búnar að fara yfir leik gærdagsins.
Þær komu sér í kjörstöðu strax, vörnin stóð þétt og gerðu þær grísku stelpunum erfitt fyrir að finna rammann. Hálfleikstölur voru 15-7.
Í seinni hálfleik var ekkert gefið eftir þrátt fyrir að vera nánast búnar að vinna leikinn í hálfleik.
Þegar mest lét var íslenska liðið 10-11 mörkum yfir og héldu þær þeirri forystu út seinni hálfleikinn.
Þegar flautað var til leiksloka var staðan 31-19 og íslensku stelpurnar fögnuðu vel í leikslok.
Afhverju vann Ísland?
Íslenska liðið mætti ákveðið til leiks. Eftir skell gærdagsins sást að það var búið að fara yfir hlutina og stappa í stelpurnar stálinu. Varnarleikurinn var öflugur og Harpa Valey stóð gríðarlega vel í 5-1 vörninni og náðu þær að keyra vel í hraðaupphlaup. Varnarleikurinn var einnig góður og markvarslan eftir því.
Hverjar stóðu upp úr?
Hjá íslenska liðinu var það Rut Jónsdóttir sem var atkvæðamest með 7 mörk. Lovísa Thompson, Sigríður Hauksdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir voru allar með 4 mörk.
Elín Jóna Þorsteinsdóttir varði 8 bolta í markinu og var með 35% markvörslu.
Hjá Grikklandi var það Maria Chatziparasidou með 4 mörk. Aikaterini Mania, Vasiliki Gkatziou, Agni Zygoura og Erika Zeneli með 3 mörk.
Magdalini Kepesidou var með 7 varða bolta, 20% markvörslu.
Hvað gekk illa?
Leikur Grikklands gekk illa. Þær áttu erfitt með að finna markið og réðu lítið við varnarleik íslenska liðsins. Sóknarleikurinn var klaufalegur og oft sem línusendingarnar enduðu í höndum íslenska liðsins.
Hvað gerist næst?
Næsti leikur íslenska landsliðsins fer fram á morgun og mæta þær Litháen kl 18:00.