Vatnsskortur hrjáir eitt af hverjum fimm börnum í heiminum Heimsljós 23. mars 2021 11:33 Unicef Rúmlega 1.4 milljarður manna býr á svæðum þar sem mikill eða mjög mikill vatnsskortur er. Ný gögn frá UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, varpa ljósi á að vatnsskortur í heiminum er kominn á hættustig. Rúmlega 1,4 milljarðar manna, þar af yfir 450 milljónir barna í yfir 80 löndum, búa í dag á svæðum þar sem er mikill eða mjög mikill vatnsskortur. Þetta þýðir að eitt af hverjum fimm börnum í heiminum hefur ekki nóg vatn til að uppfylla daglegar þarfir sínar. Alþjóðadagur vatnsins var í gær, 22. mars. „Öruggt drykkjarvatn er nauðsynlegt fyrir líf og heilsu barna og óhreint vatn getur valdið veikindum eða jafnvel dauða. Vatnsbornir sjúkdómar á borð við kóleru og niðurgangspestir draga árlega hundruð þúsunda barna til dauða á meðan önnur missa af skólagöngu þar sem þau þurfa að ganga langar vegalengdir á hverjum degi til að sækja vatn fyrir sig og fjölskyldur sínar. Þegar vatnsauðlindir minnka geta börn að sama skapi ekki þvegið hendur sínar til að verjast sjúkdómum,“ segir í frétt frá UNICEF. Til að bregðast við vatnskrísu heimsins hefur UNICEF hleypt að stað nýju átaksverkefni, Water Security for All, til að virkja alþjóðasamfélagið og nýsköpunarfyrirtæki í að bregðast við ástandinu. Hægt er að kynna sér niðurstöður skýrslunnar hér. Vatnshreinsitöflur á sannargjafir.is Innan við þrjú prósent af vatnsauðlindum heimsins eru ferskvatn sem verða sífellt af skornari skammti. Áratugir af ofnotkun vatns og mengun ferskvatnsbirgða hefur aukið álagið á vatnsból heimsins. Breytt úrkomumynstur og öfgar í veðurfari vegna hamfarahlýnunar hafa aukið vatnsskortinn enn frekar. Á sama tíma hefur þörfin fyrir vatn aukist vegna fólksfjölgunar, þéttbýlismyndunar og aukinnar eftirspurnar frá meðal annars landbúnaði, iðnaði og orkuframleiðslu. Engin merki eru um að slík eftirspurn minnki á næstu árum. Skýrsla UNICEF beinir sjónum sínum sérstaklega að 37 „heitum reitum“ þar sem aðstæðurnar eru einna verstar fyrir börn og þar sem grípa þarf til aðgerða tafarlaust. Á þessum lista eru meðal annars Afganistan, Búrkína Fasó, Eþíópía, Haítí, Jemen, Kenía, Nígería, Níger og Pakistan. UNICEF útvegar hreint vatn á hverjum degi, á hamfarasvæðum, átakasvæðum og sem hluta af vatns- og hreinlætisverkefnum í yfir 90 löndum um allan heim. Áhersla er meðal annars lögð á að tryggja samfélögum og skólum hreinlætisaðstöðu og vatnsdælur, veita fræðslu um hreinlætisvenjur og útdeila vatnshreinsitöflum sem breyta óhreinu vatni í drykkjarhæft á örskotsstundu. Á hverju ári hefur fólk á Íslandi brugðist við vatnsskorti barna um allan heim með því að gefa vatnshreinsitöflur í gegnum Sannar gjafir UNICEF. Í fyrra voru keyptar 958 þúsund vatnshreinsitöflur á Íslandi sem duga til að hreinsa tæplega 4,8 milljónir lítra af vatni! Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Mest lesið Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Aðild að ESB þurfi ekki að vera já eða nei spurning Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang Innlent Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Innlent Stór hluti hærra skrásetningargjalds fari í að borga veitingareikning HÍ Innlent Lausir endar í Edition-málinu Innlent Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Erlent Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Skaust inn með tómata og fékk enn eina sektina Innlent Séð Margréti beita móður sína ofbeldi rétt áður en hún myrti föður sinn Innlent Aðild að ESB þurfi ekki að vera já eða nei spurning Innlent Ótrúlegur öldugangur og margt að mestu horfið Innlent Fjörutíu milljarða greiðsla Kerecis snýr halla á ríkissjóði í afgang Innlent Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa Innlent Stór hluti hærra skrásetningargjalds fari í að borga veitingareikning HÍ Innlent Lausir endar í Edition-málinu Innlent Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Erlent Sólveig Anna furðar sig á kjörum borgarstjóra Innlent