Renault Zoe - eins og félagsheimilið í Með allt á hreinu Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 20. júní 2021 07:00 Renault ZOE Renault Zoe er fimm manna rafdrifinn borgarbíll. Hann er smekklega hannaður og staða ökumanns er afburðagóð. Drægnin er í ofanálag mjög fín. Zoe er meiri bíll en svo að hægt sé að kalla hann borgarsnattara, eins og flokkunin gefur til kynna. Hann er þéttur og góður og því vel hæfur til langkeyrslu.
Útlit Bíllinn er sportlegur og hann yfirbyggingin er skemmtileg blanda af hvössum og mjúkum línum. Línurnar frá framljósum og að Renault merkinu eru mjög hvassar sem dæmi en á á móti er húddið mótað með fremur mjúkum línum. Hann ber ekki með sér útlitslega að vera hár og hann er eins og félagsheimilið í með allt á hreinu, lítill að utan en stór að innan. Húddið er mótað með mjúkum línum, en skarpar línur eru dregnar frá ljósum að merki. Aksturseiginleikar Staða ökumanns er framúrskarandi góð og fellur sérstaklega vel að öðrum einkennum bílsins, maður situr uppréttur og hátt uppi. Þetta er ekki sportbíll og því engin ástæða til að sitja of neðarlega og halla of mikið aftur á bak. Bíllinn hefur fínt grip en aflið er þannig eins og oft vill verða með rafbíla að það er auðvelt að spóla á honum. Zoe er þó langt frá því að vera rafbíla verstur þegar að því kemur. Notagildi Þótt bíllinn sé vissulega eins og félagsheimilið í Stuðmannamyndinni Með allt á hreinu, þá er hann enginn flutningabíll. Það er bras að setja þrjá fullorðna aftur í. Skottið er þó sennilega með besta nóti miðað við aðra rafbíla í þessum stærðarflokki. Innra rými Innra rýmið í Zoe er smekklegt og hlýlegur staður að vera á. Það einkennist helst af stórum sjá sem þjónustar afþreyingarkerfið og veitir allskonar upplýsingar. Innra rýmið er smekklegt. Drægni og hleðsla Drægnin er frá 383km og upp í 395km. Ekkert í reynsluakstri blaðamanns gefur ástæðu til að efast um þá drægni. Með 7,4kW heimahleðslustöð getur bíllinn hlaðið alveg frá 0 og upp í 100% á 9 klukkustundum og 25 mínútum. Með 22 kW heimahleðslustöð, sem er þriggja fasa, þá er hleðslutíminn frá 0-100% einungis 3 klukkustundur. Verð og samantekt Renault Zoe kostar frá 4.450.000kr og upp í 4.950.000 kr. Fyrir reynsluaksturinn verður ofanritaður að viðurkenna að honum þótti Zoe hátt verðlagður miðað við stærð bílsins. Nú hefur sú skoðun þó breyst og ef miðað ver við bílinn sem allflestir einstaklingar vilja miða við, Tesla Model 3, þá er vissulega smávægilegur stærðarmunur, hann er alls ekki eins mikill og kann að virðast í fyrstu. Vissulega er Zoe ekki með sömu drægni, ekki langt frá ódýrustu gerðum en þónokkuð ódýrari.
Vistvænir bílar Mest lesið Skellur á með látum, versnar hratt og hviður jafnvel yfir 50 m/s Innlent Þetta er vitað um árásarmanninn í Örebro Erlent Appelsínugular viðvaranir taka gildi: Stormur og sums staðar ofsaveður Veður Hætta að taka við og dreifa smábögglum frá Kína Erlent „Svona endaði baráttan vegna skiltisins umtalaða“ Innlent Neita öll sök og einn segist ósakhæfur Innlent Trump segir Bandaríkjamenn munu taka yfir og „eignast“ Gasa Erlent Guðrún boðar til fundar Innlent Vill endurskoða styrki til Morgunblaðsins eftir umfjöllun um Flokk fólksins Innlent Óvænt boðaður til fundar hjá sáttasemjara Innlent