Íslenski hópurinn vakti mikla forvitni hvert sem hann fór á Locarno enda hefur sú staðreynd að hasar gamanmynd hafi verið boðið að taka þátt í aðalkeppni á hátíðinni vakið mikla fjölmiðla athygli.
Hannes til Hollywood
Mikil fagnaðarlæti brutust út á sýningunni en áhorfendur blístruðu og klöppuðu þegar Birgir Gíslason átti stórleik. Á blaðamannafundi fyrir sýninguna var hans frammistöðu hrósað hástert.
„Ég verð að viðurkenna að maður fékk kökk í hálsinn af stolti. Reyndar á það sama við um allan hópinn. Það rúlluðu nokkur tár þarna hjá Íslendingunum þegar salurinn fagnaði,“
segir Auðunn Blöndal leikari myndarinnar sem er líka frændi Birgis.
„Það hefur verið ótrúlega gaman að lesa dómana sem hafa verið birtir, við erum enn að átta okkur á þessu. Flestum ef ekki öllum fer saman um að hér sé á ferð mjög sterk fyrsta mynd leikstjóra, frábær skemmtun, sterk persónusköpun og sérstaklega tekið fram að kvenpersónur myndarinnar séu sterkir. Einn gagnrýnandi gengur svo langt að spá Hannesi framtíð í Hollywood að leikstýra stjörnum á borð við Dwayne Johnson. Ég held maður geti ekki beðið um betri viðbrögð,“ segir Lilja Ósk framleiðandi myndarinnar.
Þann kvikmyndadóm má lesa í heild sinni á vef ICS Films.
Nýlegt sýnishorn fyrir íslensku hasar- og gamanmyndina Leynilöggan má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Sterk frumraun
Framleiðendur Leynilöggu lokuðu nýverið samning við sölufyrirtækið Alief og segir Lilja Ósk það skref hafa verið mjög stórt og mikilvægt fyrir myndina. Brett Walker frá sölufyrirtækinu Alief sagði við það tilefni að kvikmynd eins og Leynilöggu sé afar sjaldgæft að finna og að allir aðdáendur gömlu næntís myndanna ættu ekki að láta myndina fram hjá sér fara.
„Mjög sterk frumraun leikstjóra.“
Sagan á bak við myndina er að árið 2011 tóku þeir Auðunn Blöndal og Sverrir Þór Sverrisson þátt í stiklu-keppni í sjónvarpsþáttunum Auddi og Sveppi og gáfu í kjölfarið út stiklu úr kvikmynd sem þeir kölluðu Leynilögga sem sló í gegn. Þá fæddist hugmynd að skrifa handrit að bíómynd og tíu árum síðar hófust svo tökur á kvikmyndinni.

Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson leikstýrir myndinni. Hann á handritið ásamt Nínu Petersen og Sverri Þór Sverrissyni en á bakvið söguna standa Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Hannes Þór. Lilja Ósk Snorradóttir hjá Pegasus framleiðir myndina og er Elli Cassata kvikmyndatökumaður.
Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Vivian Ólafsdóttir og Sverrir Þór Sverrisson fara með hlutverk í kvikmyndinni ásamt glæsilegum hópi leikara. Rúrik Gíslason, Jón Jónsson og Bríet koma einnig fram í myndinni, sem fer í sýningar hér á landi síðar í þessum mánuði.