Liðin sem taka þátt í mótinu eru mætt til landsins, en ef marka má Twitter-reikninga nokkurra leikmanna hefur undirbúningurinn ekki gengið áfallalaust fyrir sig.
Þeir Elyoya og Humanoid, sem leika fyrir MAD Lions og Odoamne, sem leikur fyrir Rogue, hafa allir talað um að hótelið sem þeir gista á bjóði þeim ekki upp á nægilega góða nettengingu, og að í sumum tilfellum hafi rafmagni einfaldlega slegið út.
Þurfa að æfa á hótelherbergjum
Þrátt fyrir það að slakað hafi verið á sóttvarnarreglum hér á landi, eru gríðarlega miklar ráðsstafanir í gildi í kringum mótið. Því hafa liðin þurft að æfa inni á hótelherbergjum og eins og gefur að skilja er net- og rafmagnstenging mikilvægur þáttur í tölvuleikjaiðkun.
Eins og áður segir hafa að minnsta kosti þrír leikmenn kvartað yfir aðstöðunni á Twitter-reikningum sínum. Einn þeirra, Odoamne, hefur verið duglegur við að skjóta beint á Riot Games, framleiðendur League of Legends, í færslum sínum.
„Hey @RiotSupport, við erum í erfiðum riðli og allt það en smá nettenging væri fín,“ skrifaði Odoamne í einni færslunni.
Hey @RiotSupport our group is really hard and all but some internet would be nice
— Andrei Pascu (@Odoamne) September 28, 2021