BL frumsýnir sportlega jepplinginn Renault Arkana hybrid Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 8. október 2021 07:00 Arkana séður að framan. Renault Arkana verður frumsýndur hjá BL við Sævarhöfða á morgun, laugardag, 9. október milli 12 og 16. Hönnun Arkana er í senn sportleg og kraftmikil þar sem koma saman aflíðandi línur og afturhallandi baksvipurinn. Arkana ber sterkan svip sportjeppa, bæði vegna hressandi útlitsins en einnig vegna þess hve veghæð undirvagnsins er mikil. Renault undirstrikar svo sportlegt yfirbragðið með mögulegum aukahlutum á borð við stigbretti, vindskeið að aftan og aðkomuljós á undirvagni svo nokkuð sé nefnt.
Meðfylgjadi er fréttatilkynning frá BL. Rafknúinn akstur Arkana er búinn tækninni E-TECH hybrid bensínvélar og rafmótors til að hámarka nýtingu eldsneytis og takmarka mengun. Rafmótorinn, sem styðst við 1,2 kWh (230 V) rafhlöðu, gerir kleift að aka stutta vegalengd, allt að 5 km, eingöngu á rafmagni áður en aðalvélin kemur inn. Með endurheimt hemlaorku hleðst svo orka hratt og sjálfkrafa inn á rafhlöðu bílsins. Innra rými í Renault Arkana. Þægindi Arkana er vel búinn staðalbúnaði. Arkana er til dæmis með sjálfvirkum aðfellanlega og upphitaða hliðarspegla, sjálfvirka stillingu aðalljósa, regnskynjara á rúðuþurrkum og mismunandi akstursstillingum við 7 gíra sjálfskiptinguna. Af sömu ástæðu er Arkana líka búinn bakkaðstoð og fjarlægðarskynjurum og tækni sem getur lagt bílnum án aðstoðar í bílastæði. Þá er Arkana einnig búinn easy link-margmiðlunarkerfinu sem tengist snjallsímanum sem stjórnað er á stórum margmiðlunarskjá svo fátt eitt sé nefnt. Arkana séður aftan frá. Öryggi Öryggisins vegna er Renault Arkana svo búinn ýmsum aðstoðarkerfum fyrir þjóðvegi og umferðarteppur, umferðarskynjara og tækni sem ber kennsl á gangandi og hjólandi vegfarendur í nálægð við bílinn, dekkjaþrýstingsskynjara svo örfá dæmi séu nefnd um vel útilátinn staðalbúnað Arkana. Verð Arkana Intens og RS line Renault Arkana er fáanlegur í tveimur útfærslum, Intens og RS line, sem báðar eru búnar 1,6 lítra 143 hestafla bensínvél og rafmótor við sjö gíra sjálfskiptingu. Eyðsla er frá 4.9 l/100 km. Renault Arkana Intens kostar 5.690 þúsundir króna og RS line 5.990 þúsundir króna. Umfram Intens er RS line m.a. búinn 18“ sérhönnuðum álfelgum, svörtu glerþaki, rafdrifnum framsætum og leðri, Bose hljóðkerfi og 360°myndavél. Allar nánari upplýsingar um eiginleika og ríkulegan staðalbúnað Renault Arkana, Intens og RS line eru að finna á Renault.is.
Mest lesið „En við munum sjá til þess að allt fari vel“ Erlent Skoðaði staðsetningu stúlkunnar hátt í 150 sinnum fyrir árásina Innlent „Að gera þetta svona rétt fyrir sauðburð þykir okkur mjög grimmilegt“ Innlent Ný þrjátíu milljarða króna álma bætist við Leifsstöð Innlent Bein útsending: Gera aðra atlögu að tunglinu Erlent Spyr sig hvort eftirlitsnefnd hafi unnið hratt í „þágu tiltekinnar niðurstöðu“ Innlent Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent „Við þurfum einhvers staðar að draga saman á móti“ Innlent Óbólusett barn lést vegna mislinga Erlent Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Innlent
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent
Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Innlent