Útlit
Model Y er að miklu leyti eins og hækkaður Model 3, nema myndarlegri, með meiri framenda en Model 3. Hann samsvarar sér að mati blaðamanns mjög vel. Það er eiginlega ekki veikan útlitsblett að finna á Model Y.

Á sama tíma og hann er smekklega hannaður er hann ekki hannaður til að eldast illa. Það mætti því segja að hér fari hugsanlega fyrsti klassíski rafbíllinn.

Aksturseiginleikar
Upptakið er það allra fyrsta sem maður tekur eftir en aksturseiginleikarnir ná dýpra en það að hann sé snöggur úr kyrrstöðu í 100 km/klst. Long Range útgáfan er 5 sekúndur í 100 km/klst úr kyrrstöðu en Performance útgáfan er 3,7 sekúndur.

Hann er líka fær um að fara fremur hratt í gegnum beygjur. Hann er þó þægilegri en Model 3, þýðari yfir hraðahindranir og holur. Reynsluakstursbíllinn var á 19" felgum. Það hefur þónokkuð að segja hann er þýðari þannig.

Notagildi og innra rými
Model Y hefur eignast samkeppnisaðila í Kia EV6 sem er afar góður bíll. Hins vegar er notagildi það sem Model Y hefur helst fram yfir EV6 og þá einna helst farangursrými. Skottið á Model Y er stærra en EV6. Báðir eru afar góðir í umgengni og fótaplássið aftur í er sambærilegt, gott í báðum.
Kia EV6 - Getur rótgróinn bílaframleiðandi framleitt góðan rafbíl?

Innra rýmið í Model Y er látlaust og smekklegt, stór skjár sem gerir allt eins og Tesla einni er lagið. Atriði eins og þráðlaus símahleðsla undir skjánum, síminn notaður sem lykill og smáforrit sem leysir ýmis verkefni úr hendi. Telsa hugsar fyrir flestu.

Drægni og hleðsla
Drængi Model Y er 480-507 km. Ekkert í reynsluakstrinum gefur ástæðu til að efast um það. Model Y er fjórhjóladrifinn í báðum útfærslum.
Model Y er fær um að taka inn á sig 250 kW í ofurhleðslustöðvum Tesla. Þá er hann 25 mínútur að fara úr 43 km drægni upp í 344 km drægni, samkvæmt upplýsingum frá Tesla. Model Y er 8 klst og 15 mínútur að hlaða sig í 11 kW heimahleðslustöð.

Verð og samantekt
Model Y kostar frá 7.904.579 kr. og til 9.020.591 kr. áður en litur er valinn sem er ekki hvítur.
Model Y er einn besti raf(sport)jepplingur sem fáanlegur er á markaðnum í dag. Fyrir þetta verð er einn helsti keppinauturinn eins og áður segir Kia EV6. Model Y er einstaklega þægilegur bíll að kynnast og nota.

Hann hentar vel fyrir fjölskyldur, farangur þeirra og annað hafurtask. Model Y er fullkomlega fær um að þjóna vísitölufjölskyldu vel. Miðað við þann fjölda sem þegar hefur selst virðist mikið af fólki hafa efni á bílum sem þessum. Hann hefur þegar selst í yfir 300 eintökum hér á landi. Tæplega 2,4 milljörðum króna hefur verið varið í kaup á Model Y á árinu.