Tekjur Sýnar hækkuðu um rúmar 470 milljónir milli ára Atli Ísleifsson skrifar 3. nóvember 2021 16:23 Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, segir að félagið sýni áfram mikinn bata í rekstri. Vísir/Vilhelm Tekjur Sýnar námu 5.533 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi og hækkuðu um 471 milljón króna milli ára. Tekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins voru 15.822 milljónir króna sem er 2,2 prósenta aukning frá sama tímabili árið 2020.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu til Kauphallar en fjárfestafundur verður haldinn í fyrramálið. Þar segir að EBITDA hafi numið 1.886 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við 1.593 milljónum króna á sama tímabili í fyrra. Var EBITDA hlutfallið 34,1 prósent á þriðja ársfjórðungi 2021 samanborið við 31,5 prósent í fyrra. EBITDA á fyrstu níu mánuðum ársins var 4.762 milljónir króna sem er 10,4 prósenta hækkun frá fyrstu níu mánuðum ársins 2020. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi 2021 nam 172 milljónum króna samanborið við átta milljóna hagnað á þriðja ársfjórðungi 2020. Tap á fyrstu níu mánuðum ársins 2021 nam 176 milljónum króna samanborið við 402 milljóna tapi á fyrstu níu mánuðum 2020. Inni í tapi á fyrstu níu mánuðum þessa árs er er sölutap að fjárhæð 179 milljónir króna vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey. Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar.Sýn Reksturinn orðinn arðbær Haft er eftir Heiðari Guðjónssyni, forstjóra Sýnar, að félagið sýni áfram mikinn bata í rekstri og að sá viðsnúningur sem hafi hafist fyrir ári síðan haldi áfram. „Þrátt fyrir ýmsar ytri áskoranir, sem flestar eru enn til staðar, þá er rekstur okkar orðinn arðbær og væntingar eru um enn frekari árangur. Það er ánægjulegt að báðar tekjustoðirnar, fjarskipti og fjölmiðlar sýna aukningu tekna á síðasta fjórðungi. Ég hef áður talað um möguleika fyrirtækisins á að fjölga tekjustoðum. Við erum með um helming allra heimila og fyrirtækja í föstu mánaðarlegu reikningssambandi og viljum útvíkka þjónustuframboð til okkar viðskiptavina. Þetta er í takti við stefnumótun fyrirtækisins sem við kynntum fyrir tveimur árum. Stærsta fjárfesting okkar síðustu tvö ár hefur verið í upplýsingakerfunum. Nú eru innri kerfin okkar að verða í stakk búin að halda utan um nýjar þjónustur með skilvirkum hætti. Við erum því ánægð að kynna nýja starfsemi en það er færsluhirðing fyrir fyrirtæki. Við sjáum strax að okkar viðskiptavinir taka innkomu nýs aðila inn á markaðinn fagnandi. Við bíðum enn niðurstöðu eftirlitsaðila vegna sölu á óvirkum farsímainnviðum,“ er haft eftir Heiðari. Nánar má lesa um ársfjórðungsuppgjörið í tilkynningunni til Kauphallar. Vísir er í eigu Sýnar.
Kauphöllin Fjarskipti Fjölmiðlar Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira