Barcelona og Benfica gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í fyrsta Meistaradeildarleik Börsunga undir stjórn Xavi. Úrslitin þýða að bæði lið eiga enn möguleika á að fara upp úr E-riðli.
Börsungar voru meira með boltann í leiknum, en bæði lið fengu sín færi til að koma boltanum í netið.
Heimamenn frá Barcelona færðu sig svo framar á völlinn í seinni hálfleik og héldu áfram að pressa á gestina. Það voru þó gestirnir sem voru nálægt því að stela sigrinum þegar Haris Seferovic slapp einn í gegn á fjórðu mínútu uppbótartíma, en setti boltann framhjá.
Niðurstaðan varð því markalaust jafntefli og bæði lið eiga því enn möguleika á að komast upp úr riðlinum.
Börsungar eru með sjö stig fyrir lokaumferðina, tveimur stigum meira en Benfica, sem hefur þó betri innbyrgðis árangur gegn Barcelona. Xavi og lærisveinar hans þurfa því á sigri að halda gegn Bayern München í lokaumferðinni, eða að treysta á að Benfica mistakist að sigra botnlið Dynamo Kiev.