Hollendingar og Rúmenar með stórsigra | Frakkar þurftu að hafa fyrir sigrinum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 11. desember 2021 18:32 Frakkar unnu dýrmætan sigur gegn Serbum í dag. Dean Mouhtaropoulos/Getty Images Fjórum af þeim sex leikjum sem fram fara á Heimsmeistaramóti kvenna í handbolta í dag er nú lokið. Hollendingar unnu risasigur gegn Kasakstan og það gerðu Rúmenar einnig gegn Púertó Ríkó. Frakkar þurftu að hafa fyrir sigrinum gegn Serbum og Rússar unnu öruggan sigur gegn Svartfellingum.
Eins og áður segir unnu Hollendingar og Rúmenar stórsigra og spennan í þeim leikjum var því ekki mikil. Hollendingar skoruðu 14 af fyrstu 16 mörkum leiksins gegn Kasakstan, og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 27-9, hollensku stelpunum í vil. Sömu sögu er að segja af seinni hálfleiknum, en lokatölur urðu 61-15 og Hollendingar lyftu sér í efsta sæti riðilsins með sjö stig eftir fjóra leiki. Þá unnu Rúmenar 23 marka sigur gegn Púertó Ríkó, 43-20, í sama riðli fyrr í dag, en Rúmenar eru nú í fjórða sæti riðilsins með fjögur stig. Rússar lyftu sér tímabundið í efsta sæti síns riðils með sex marka sigri gegn Svartfjallalandi, 31-26, en Rússarnir höfðu yfirhöndina allt frá upphafi leiks og sigur þeirra var aldrei í hættu. Frakkar þurftu hins vegar að hafa fyrir hlutunum þegar liðið mætti Serbum. Eftir kaflaskiptan fyrri hálfleik höfðu þær serbnesku þriggja marka forystu, 12-9, en franska liðið var ekki lengi að snúa taflinu sér í hag í seinni hálfleik. Liðin skiptust þó á að hafa forystuna lengi vel, en Frakkarnir reyndust sterkari á lokakaflanum og unnu að lokum þriggja marka sigur, 22-19. Frönsku stelpurnar endurheimtu þar með efsta sætið af Rússum, en Serber eru enn í þriðja sæti riðilsins.
HM 2021 í handbolta Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Breiðablik - Keflavík | Blikar komnir á skrið Íslenski boltinn Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira