Tvöföldun framlaga Íslands til Hnattræna jafnréttissjóðsins Heimsljós 13. desember 2021 11:50 Framlagið nam áður eitt hundrað þúsund Bandaríkjadölum en verður tvö hundruð þúsund. Ísland ætlar að tvöfaldar framlög sín til Hnattræna jafnréttissjóðsins (Global Equality Fund) en sjóðurinn beinir stuðningi sínum sérstaklega að mannréttindum hinsegin fólks. Tilkynnt var um framlagið á fundi Alþjóðamálastofnunar og Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands sem haldinn var í tilefni alþjóðlega mannréttindadagsins á föstudag. Framlagið nam áður eitt hundrað þúsund Bandaríkjadölum en verður tvö hundruð þúsund. Jafnframt var tilkynnt um stuðning Íslands við átaksverkefnið UN Free and Equal sem starfar innan skrifstofu mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) og hefur að markmiði að berjast fyrir réttindum hinsegin fólks hvarvetna í heiminum. Í verkefninu felast upplýsingaherferðir í samvinnu við aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna sem berjast fyrir afglæpavæðingu á samböndum hinsegin fólks og vinna gegn ofbeldi og mismunun á grundvelli kynhneigðar eða kynvitundar. Alþjóðlegi mannréttindadagurinn er haldinn 10. desember ár hvert en á föstudaginn voru 73 ár liðin síðan mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna var samþykkt. Af því tilefni buðu Alþjóðamálastofnun, Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytið til umræðu um loftslagsbreytingar og mannréttindi í Veröld – húsi Vigdísar. „Baráttan fyrir mannréttindum er jafn mikilvæg í dag og fyrir meira en 70 árum. Á tímum heimsfaraldursins höfum við séð bakslag í þeirri baráttu á alþjóðavísu og því mikilvægara sem aldrei fyrr að standa vörð um grundvallarréttindi fólks,” sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra meðal annars í ávarpi sínu. Hún áréttaði einnig mikilvægi þess að auka umræðu um áhrif loflagsbreytinga á mannréttindi: „Loftslagsbreytingar hafa víðtæk áhrif á líf fólks víða um heim, sér í lagi viðkvæmustu hópana. Ég fagna því aukinni umræðu á alþjóðavettvangi um áhrif loftslagsbreytinga á mannréttindi,” sagði hún. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Jafnréttismál Hinsegin Mannréttindi Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Jafnréttismál Hinsegin Mannréttindi Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent