Herferðin byggir á því að GR86 sé smíðaður „af áhugafólki fyrir áhugafólk“ eða á ensku „by enthusiasts for enthusiasts“.
FasterClass er hugarsmíði þriggja auglýsingastofa sem koma að verkefninu. Ein þeirra, Saatchi & Saatchi gerði stutt myndbönd með drift kappakstursfólki af heimsmælikvarða. Þar á meðal Stephan Papadakis og Fredric Aasbø. „Við vitum að áhugafólk er alltaf að leita að leit til að bæta akstursfærni sína og vill að bíllinn gæti kallað fram það besta í sér, eins og hinn kappakstursklári nýi GR86,“ sagði Matt Davis listrænn stjórnandi hjá Saatchi & Saatchi.
Hér má sjá myndband frá Saatchi & Saatchi:
Önnur stofa sem vann að FasterClass, Conill Advertising lagði áherslu á getu GR86 til að virka vel og vera mjúkur í akstri á þéttsetnum götum. Þriðja stofan nýtti sér japanskan bakgrunn Toyota og stillti upp markaðsefni með Anime og manga þema.
Hér má sjá myndband frá Toyota um GR86:
„Heimurinn er stöðugt að verða sjálfvirkari, það er því mikilvægara en nokkru sinni að fagna því að við eigum sögu í smíðum bíla sem er gaman að keyra og eru á sanngjörnu verði. Okkur finnst tíminn réttur núna til að kynna þessa herferð fyrir hinn nýja Toyota GR86 og það kveikir í áhugafólki sem tekur eftir auglýsingunum,“ sagði Lisa Materazzo leiðtogi í markaðsteymi Toyota í Norður Ameríku.