Pólverjar sóttu sitt fyrsta stig Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. janúar 2022 16:17 Arkadiusz Moryto skoraði sex mörk fyrir Pólverja í dag. Nebojsa Tejic/Kolektiff Images/DeFodi Images via Getty Images Pólverjar og Rússar skiptu stigunum á milli sín er liðin mættust á EM í handbolta í dag. Loktölur urðu 29-29, en úrslitin þýða það að möguleikar Rússa á að fara upp úr milliriðli eru nánast orðnir að engu.
Rússarnir byrjuðu leikinn betur og náðu fljótt þriggja marka forskoti. Pólska liðið hleypti Rússunum þó ekki of langt fram úr sér og minnkaði muninn hægt og rólega. Pólverjar snéru svo leiknum sér í hag rétt fyrir hálfleik og fóru með eins marks forystu inn í hléið, 13-12. Mikið jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik, en Rússarnir náðu forystunni á ní þegar um tuttugu mínútur voru til leiksloka. Forystan varð þó aldrei meiri en tvö mörk og ekkert sem gat skilið liðin að. Pólverjar jöfnuðu metin í stöðunni 23-23, og eftir það skiptust liðin á að hafa forystuna. Hvorugu liðinu tókst að slíta sig frá andstæðingum sínum og því endaði leikurinn með jafntefli, 29-29. Rússar sitja nú í fjórða sæti riðilsins með þrjú stig eftir fjóra leiki, aðeins einu stigi á eftir Norðmönnum sem sitja í öðru sæti sem gefur keppnisrétt í undanúrslitum. Liðin í kringum Rússland í riðlinum eiga þó öll leik til góða og því eru möguleikar Rússa nánast orðnir að engu. Pólverjar sitja hins vegar sem fastast á botni riðilsins með eitt stig.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Stríðinn hrafn fluttur á Laugardalsvöll Fótbolti Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Íslenski boltinn Barcelona Spánarmeistari Fótbolti Vonast til að Man United sé tilbúið að selja sig á tæplega sjö milljarða króna Enski boltinn Ólympíumeistarinn hallar sér að Jesú og fjölskyldunni í kjölfar handtöku Sport Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Fótbolti Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fótbolti „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Handbolti Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Körfubolti Allt annar andi vestur í bæ en þegar hún var síðast í KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Sjá meira