„Tacosalat eða pizza? Nánast undantekningalaust er tacosalat eða pizza í matinn hjá mér á föstudögum, hvort verður fyrir valinu hefur eiginlega allt með tíma að gera. Ef ég hef tímann fyrir mér þá geri ég pizzu frá grunni, ef ég hef skemmri tíma til að elda þá geri ég þetta geggjaða tacosalat. Tacosalatið er auðvelt að gera, örfá hráefni og það eina sem maður þarf að elda er nautahakkið. Njótið vel,“ segir Kristín Björk um salatið.
Kristín Björk heldur úti skemmtilegri Instagram síðu en þættirnir hennar munu birtast vikulega hér á Vísi. Hægt er að horfa á fyrstu þættina HÉR.
Þáttinn má sjá í spilaranum en uppskriftina má svo finna neðar í fréttinni.
Tacosalat
- 1 bakki ungnautahakk
- 1 bréf taco seasoning mix
- Kínakál
- Agúrka
- Tómatar
- Rifinn mozarella ostur
- 1/2 poki osta nachos
Sósan:
- 1 dós 10% sýrður rjómi
- Thai Sweet Chilli sósa, jafn mikið og sýrði rjóminn
Guacamole:
- 3 Avocadó
- 2 tómatar
- 1 hvítlaukur
- safi úr 1/2 lime
- Rauður chilli
- Kóriander
Gott að bera fram með salsa sósu