Fengu grænt ljós frá Uriah Heep Steinar Fjeldsted skrifar 6. október 2022 01:46 Hljómsveitin Nostal var stofnuð árið 2014 en sveitin er samsett af sex einstaklingum með ólíkan bakgrunn og koma þeir víðsvegar að af landinu. Það sem sameinar þá er áhugi á tónlist og að spila saman rokk og ról. Nostal er áhugamannahljómsveit sem æfir 1-2 í viku, heldur 3-5 tónleika á ári og spilar lög þekktra tónlistarmanna og hljómsveita, auk þess sem hún flytur eigið efni. Meðlimir Nostal eru Bjarni Ómar Haraldsson (söngur og kassagítar) Svavar Hafþór Viðarsson (bassi), Baldur Ketilsson (gítar), Þröstur Leósson (gítar), Jón Karl Ólafsson (hljómborð) og Ragnar Z. Guðjónsson (trommur). Lagið Mín leið í flutningi Nostal er íslensk útgáfa af laginu One Minute sem Uriah Heep gaf út árið 2014. Uriah Heep hefur aldrei áður heimilað aðra texta við lög sín en þeirra eigin, fyrr en nú. Eftir að hafa neitað Nostal í fyrstu kom óvænt grænt ljós á útgáfuna. Ástæðan eru gömul kynni þeirra við þrjá hljómsveitarmeðlimi Nostal í miðbæ Reykjavíkur 21. apríl árið 1988, þá Bjarna Ómar Haraldsson, Svavar H. Viðarsson og Ragnar Z Guðjónsson. Gömul kynni gleymast ei. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið
Það sem sameinar þá er áhugi á tónlist og að spila saman rokk og ról. Nostal er áhugamannahljómsveit sem æfir 1-2 í viku, heldur 3-5 tónleika á ári og spilar lög þekktra tónlistarmanna og hljómsveita, auk þess sem hún flytur eigið efni. Meðlimir Nostal eru Bjarni Ómar Haraldsson (söngur og kassagítar) Svavar Hafþór Viðarsson (bassi), Baldur Ketilsson (gítar), Þröstur Leósson (gítar), Jón Karl Ólafsson (hljómborð) og Ragnar Z. Guðjónsson (trommur). Lagið Mín leið í flutningi Nostal er íslensk útgáfa af laginu One Minute sem Uriah Heep gaf út árið 2014. Uriah Heep hefur aldrei áður heimilað aðra texta við lög sín en þeirra eigin, fyrr en nú. Eftir að hafa neitað Nostal í fyrstu kom óvænt grænt ljós á útgáfuna. Ástæðan eru gömul kynni þeirra við þrjá hljómsveitarmeðlimi Nostal í miðbæ Reykjavíkur 21. apríl árið 1988, þá Bjarna Ómar Haraldsson, Svavar H. Viðarsson og Ragnar Z Guðjónsson. Gömul kynni gleymast ei. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is.
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Crawford minnist sonarins Lífið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Lífið samstarf Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið