Leikjavísir

Stjórinn: Barist á botninum

Samúel Karl Ólason skrifar
Stjórinn 804

Baráttan á botninum í ensku Úrvalsdeildinni heldur áfram hjá Stjórunum í kvöld. Störf þeirra hanga á bláþræði og það er til mikils að vinna eða tapa.

Í Stjóranum keppast þeir Hjálmar Örn og Óli Jóels um hvor nær betri árangri með lið sitt í Englandi í Football Manager 2023. Strákarnir byrjuðu með Grimsby og Hull í fjórðu deildinni en hafa nú tekið við stjórn Southampton og Everton.

Strákarnir fá takmarkaðan tíma til að undirbúa lið sín fyrir leiki, til að kaupa leikmenn og ganga frá öðrum málum. Þeir þurfa sömuleiðis að draga áskorunarspil sem eiga að gera þeim erfitt um vik. Til dæmis gætu þeir dregið spil sem bannar þeim að nota leikmenn ef nafn þeirra byrjar á T.

Fylgjast má með streyminu í spilaranum hér að neðan, á Twitchsíðu GameTíví eða Stöð 2 eSport. Stjórinn hefst klukkan níu í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×