Spennusagan Kuldi kom fyrst út árið 2012 og varð ein söluhæsta bók ársins. Hún hefur verið þýdd á fjölda tungumála og hafa viðtökur erlendis verið afar lofsamlegar. Jyllands-Posten í Danmörku sagði hana minna á Stephen King upp á sitt allra besta.
Í sögunni ræður ung stúlka sig til starfa á unglingaheimili á áttunda áratugnum og dvöl hennar þar umbyltir lífi hennar. Þegar ungur maður fer löngu síðar að rannsaka starfsemi heimilisins taka undarlegir atburðir að skekja tilveru hans og dóttur hans.
Nú er búið að gera kvikmynd upp úr bókinni sem Erlingur Óttar Thoroddsen leikstýrir og kemur hún í kvikmyndahús 1. september næstkomandi.
Bókin verður að bíómynd
Líkt og í Ég man þig fer Jóhannes Haukur með aðalhlutverk í myndinni. Hann leikur þó ekki sömu persónu og í fyrri myndinni enda eru þær ekki beintengdar.
![](https://www.visir.is/i/EBF0B2397A65EAB053D34A13C832A8EBFCA05091CDD9412BD2201DDA1A5961C8_390x0.jpg)
Auk hans fara Elín Hall, Selma Björns, Halldóra Geirharðsdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Mikael Kaaber með stór hlutverk í myndinni.
Þá leikur hin fjórtán ára Ólöf Halla Jóhannesdóttir burðarhlutverk í myndinni en hún er dóttir Jóhannesar Hauks og leikur sömuleiðis dóttur hans í myndinni.
„Yrsa blandar saman ráðgátu við mögulega yfirnáttúrulega atburði. Við förum inn í smá hrollvekjufíling en ég myndi kalla myndina sálfræði-þriller frekar en hreinræktaða hrollvekju,“ sagði Erlingur Óttar aðspurður út í myndina.
Erlingur Thoroddsen er rísandi stjarna sem hrollvekjuleikstjóri en mynd hans Rökkur sem kom út 2017 vakti mikla athygli bæði á Íslandi og erlendis. Sigurjón Sighvatsson framleiðir myndina en hann á að baki langan kvikmyndagerðarferil.