Þórsarar hófu leikinn hratt og tóku þrjár lotur í röð áður en Saga minnkaði muninn, staðan þá 3-1. Saga svöruðu vel fyrir sig og náðu að jafna leikinn í 4-4 eftir átta lotur. Anubis reynist yfirleitt vera liðinu sem sækir hliðhollara, en leikmenn Saga náðu þó ekki að nýta sér það og Þórsarar fóru í hálfleikinn með þriggja leikja forystu þar sem Saga náði aðeins tveimur lotum til viðbótar í fyrri hálfleik.
Staðan í hálfleik: 9-6
Þórsarar réðu öllum ráðum í seinni hálfleik en Allee, leikmaður Þórs átti stórleik og í sextándu lotu sigraði hann lotu, einn gegn fjórum leikmönnum Sögu. Saga fann loksins sína fyrstu lotu í seinni hálfleik í tuttugustu lotu og staðan þá 13-7. Slökknaði þá örlítið undir Þórsurum en Saga náði heldur betur að koma sér inn í leikinn að nýju. Azuwu, leikmaður Sögu skoraði ás þegar hann felldi alla leikmenn Þórs og minnkaði muninn í aðeins eina lotu, 14-13.
Þórsarar komust í stöðuna 15-13 en fundu ekki lokahöggið á andstæðinga sína og Saga-menn knúðu fram framlengingu.
Staðan eftir venjulegan leiktíma: 15-15
Leikmenn Sögu hófu framlenginguna betur en Þórsarar voru þó fljótir að svara. Saga komst á úrslitalotu í stöðunni 17-18 en Þórsarar náðu að jafna að nýju og knýja þar með fram aðra framlengingu. Saga komst enn og aftur á úrslitalotu en Þórsarar neituðu að gefast upp og leikurinn fór í þriðju framlengingu.
Þórsarar fundu loks taktinn sinn að nýju og sigruðu allar lotur þriðju framlengingar. Tony toppaði fellutöfluna þar en hann var með 50 fellur.
Lokatölur: 25-21
Eftir æsispennandi leik standa Þórsarar uppi með sigurinn og koma sér þar með í toppsæti deildarinnar. Saga situr enn í sjöunda sæti með 4 stig, jafnir ÍA á stigum.