Þetta var mjög góð tímataka fyrir Red Bull liðið því liðsfélagi Verstappen, Sergio Perez, verður við hlið hans á ráspólnum.
Verstappen var 0,322 sekúndum á undan Perez.
Fernando Alonso hjá Aston Martin varð þriðji 0,166 sekúndum á eftir Perez. Næstir voru síðan Lando Norris og Oscar Piastri sem keyra báðir fyrir McLaren.
Þetta var aftur á móti slæmur dagur fyrir Lewis Hamilton sem ræsir í átjánda sætinu á morgun og er því ekki líklegur til að ná í mörg stig þessa helgina. Hamilton er eins og er í níunda sæti í keppni ökumanna sjö stigum á eftir Alonso sem er fyrir ofan hann.
Verstappen hefur verið ráspól í öllum fimm kappökstrum ársins og hefur unnið þrjár af fjórum keppnum tímabilsins. Verstappen er með fimmtán stiga forskot á liðsfélaga sinn Perez og með 21 stigi meira en Charles Leclerc sem er þriðji í keppni ökumanna.
Kínverski kappaksturinn hefst klukkan 6.30 í fyrramálið á Vodafone Sport stöðinni.
MAX VERSTAPPEN TAKES POLE IN SHANGHAI
— Formula 1 (@F1) April 20, 2024
Sergio Perez will join his team mate on the front row while Fernando Alonso will start from third in Sunday's race #F1 #ChineseGP pic.twitter.com/En2nvKE3bS