Robert Lewandowski reyndist hetja Barcelona er liðið vann 2-1 sigur gegn Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Börsungar tóku forystuna á 24. mínútu með marki frá ungstyrninu Lamine Yamal áður en Oihan Sancet jafnaði metin fyrir gestina úr vítaspyrnu stuttu fyrir hálfleikshlé.
Pólska markamaskínan Robert Lewandowski sá hins vegar til þess að Börsungar tóku stigin þrjú mað marki á 75. mínútu.
Niðurstaðan varð því 2-1 sigur Barcelona sem nú er með sex stig af sex mögulegum eftir fyrstu tvo leiki tímabilsins. Athletic Bilbao er hins vegar aðeins með eitt stig.