„Ég fékk þetta í raun fyrir minn þátt í því að kynna næstu kynslóð fyrir og efla hana í rafíþróttum,“ sagði Ólafur við Vísi.is eftir að hann fékk viðurkenninguna sem kennd er við Youth Champion Award og er veitt einstaklingum sem hafa gefið sig alla í að kynna rafíþróttir fyrir ungu fólki og valdefla næstu kynslóð afreksfólks í rafíþróttum.
A huge applause for @Brolikrummi for inspiring and empowering the next generation of esports talent! 👏 pic.twitter.com/mZ9Jck1n92
— Esports Insider #ESILX (@esportsinsider) September 25, 2024
„Í raun má segja að ég hafi fengið þetta fyrir allt sem búið er að gera fyrir rafíþróttastarfið á Íslandi og síðan það sem við erum búin að vera hjá ECA,“ sagði Ólafur einnig í samtali við Vísi en hann stofnaði Esports Coaching Academy eftir að hann lét af formennsku Rafíþróttasambandins.
Ólafur Hrafn sagði jafnframt að honum væri sýndur mikill heiður með viðurkenningunni en hann væri vissulega búinn að helga rafíþróttunum rúmlega síðustu sex ár ævi sinnar.

„Fókusinn og ástríðan hafa alltaf tengst því beint að koma fleiri krökkum í þann farveg að þau fái að upplifa alla spennuna og skemmtunina sem fylgir því að keppa, reyna á sig og taka tölvuleiki alvarlega. Og líka að þau séu ekki að upplifa neinar neikvæðar afleiðingar af tölvuleikjaspilun og séu að gera það í jafnvægi við aðra hluti í lífinu.“
Hérna má nálgast alla umfjöllun Vísis.is um Ólaf Hrafn og frægðarhöll rafíþróttanna.