Þegar áttasýningunni í Háskólabíó við Hagatorg lauk og tími kominn til að spjalla, birtist Bong vel upplagður og afslappaður á hvíta tjaldinu í gegnum Zoom. Það var ekki að sjá á leikstjóranum að klukkan væri 7 að morgni á skrifstofunni hans í Seoul, en Bong er augljóslega engin B-týpa.
Með aðstoð kóresks túlks lék kvikmyndagerðarmaðurinn á als oddi og ræddi um listrænar ákvarðanir sínar, veitti bókameðmæli og sagði bransasögur. Þegar opnað var á spurningar úr sal reis hver höndin upp á móti annarri – og færri en vildu náðu að bera upp spurningar til þessa margfalda Óskarsverðlaunahafa.
Fylgist vel með Degi Kára
Bong sagðist hafa kynnst íslenska leikstjóranum Degi Kára á kvikmyndahátíð í Toronto árið 2003 þegar hann sá mynd hans Nóa Albinóa – sem heillaði hann upp úr skónum.
Allar götur síðan hefur hann fylgst með ferli Dags Kára, og ljóst er að Bong hefur ekki síður verið hrifinn af frammistöðu aðalleikarans, Tómas Lemarquis, en hann fékk Bong til liðs við sig í leikarahóp framtíðartryllisins og ólandssögunnar Snowpiercer frá árinu 2013.
Matgæðingur og saknar svarthvítra mynda
Þá talaði Bong um þá ákvörðun að sýna verk sín í svarthvítri útgáfu – en það vakti athygli margra að á dagskrá RIFF var svarthvít sýning á Mother, sem kom upphaflega út í lit árið 2009. Leikstjórinn sagðist alla tíð hafa dreymt um að taka upp svarthvítar kvikmyndir – en það væri hins vegar ógjörningur að fá framleiðendur í lið með sér í þannig verkefni því það væri ekki talið söluvænt. Aftur á móti væri tiltölulega einfalt og ódýrt mál endurvinna mynd úr lit og yfir í svarthvíta útgáfu – og það hafi hann gert í seinni tíð og sýnt svarthvítu útgáfurnar í kvikmyndahúsum.
Loks fékk Bong spurningu um matarást sína – en áhorfandinn þóttist vita af verkum leikstjórans að hann væri mikill matgæðingur. Það stóð heima, sagði Bong, bæði þætti honum gott að elda og borða – en ekki síst að taka upp senur af eldamennsku og matmálstímum. Kjarninn í verkumeins og skrímslamyndinni The Host kæmi mun sterkar fram í fjölskyldustundunum við matarborðið og því sem færi fram í eldhúsinu – frekar en hryllilega skrímslið sem ræðst upp úr fljótinu.