Fékk myndir sem áttu að sýna Schumacher við „slæma heilsu“ Aron Guðmundsson skrifar 10. desember 2024 13:32 Michael Schumacher er goðsögn í sögu Formúlu 1 mótaraðarinnar einn sigursælasti ökuþór allra tíma. Visir/Getty Réttarhöld yfir þremur karlmönnum, sem sakaðir eru um að hafa reynt að kúga fé af fjölskyldu þýsku Formúlu 1 goðsagnarinnar Michael Schumacher, hófust í Wuppertal í Þýskalandi í dag.
Markus Fritsche, fyrrverandi lífvörður Michaels Schumacher ásamt feðgunum Yilmaz Tozturkan og Daniel Lins eru sakaðir um þessa tilraun til fjárkúgunar. Fjallað er um fyrsta dag réttarhaldanna á vef Daily Mail í dag. Í dómsgögnum er því haldið fram að Fritsche og Yilmaz, hafi ásamt Daniel Lins, sem er sonur Yilmaz, hafi krafist þess að Schumacher fjölskyldan myndi greiða þeim því sem nemur rúmum 2,1 milljarði íslenskra króna. Ef fjölskyldan myndi ekki gera það myndu þremenningarnir opinbera þær 1500 myndir, tvö hundruð myndskeið sem og ítarlegar læknaskýrslur um Michael Schumacher sem harði diskurinn er sagður innihalda. Vann fyrir Schumacher fjölskylduna í átta ár Yilmaz fékk tvo harða diska með þessu efni frá Fritsche. Sá hafi fengið diskana frá hjúkrunarfræðingi sem starfaði á heimili Schumacher sem hafi tjáð honum að þarna væru meðal annars myndir sem sýndu Schumacher „við slæma heilsu.“ Fritsche vann fyrir Schumacher-fjölskylduna í átta ár og hafði aðgang að mjög viðkvæmum upplýsingum um ástand ökuþórsins fyrrverandi sem hefur ekki sést opinberlega síðan hann varð fyrir heilaskaða í skíðaslysi í ölpunum fyrir um ellefu árum. Yilmaz segist hafa fengið efnið í hendurnar á tímum kórónuveirunnar árið 2021. Fritsche hafi boðið honum hörðu diskana og spurt hvort hann myndi geta „gert eitthvað við þá.“ „Ég sagðist myndu komast að því og fékk tvo harða diska, einn svartan að lit og einn bláan,“ sagði Yilmaz í dómssal í morgun en hélt því staðfastlega fram að hann hefði ekki keypt hörðu diskana af Fritsche. Því næst hafi hann reynt að selja þá áfram til þriðja aðila en að engin hefði haft áhuga á því að kaupa þá. Því hafi hann ákveðið að setja sig í samband við Schumacher fjölskylduna. Schumacher fjölskyldan með beiðni til dómstólsins Yilmaz fékk son sinn Daniel til þess að setja upp tölvupóstfang sem átti að vera órekjanlegt, en að Daniel hafi ekkert vitað um fyrirætlun sína að fjárkúga Schumacher fjölskylduna. Yilmaz neitar því ekki að hafa reynt að kúga fé út úr fjölskyldunni. „Þetta hafði slæmar afleiðingar í för með sér. Hvað get ég sagt…Ég taldi mig bara geta þénað smá pening út frá þessu.“ Fritsche hafi átt upphaflegu hugmyndina að því að reyna kúga fé af Schumacher fjölskyldunni. „Hann taldi að við gætum selt efnið fyrir um 10-15 milljónir evra. Ég er að segja ykkur sannleikann.“ Schumacher fjölskyldan hefur biðlað til dómstólsins í Wuppertal í Þýskalandi að hluti réttarhaldanna verði lokaður. Verði það samþykkt munu upplýsingar er viðkoma heilsufari Michael Schumacher ekki vera ræddar fyrir opnum tjöldum. Þetta staðfestir talsmaður Wuppertal dómstólsins og bætti því við að hann sæi ekkert því til fyrirstöðu að dómarinn myndi samþykkja þessa beiðni fjölskyldunnar. Dómari mun í dag meta hvort næg sönnunargögn séu fyrir hendi til þess að reka málið áfram fyrir dómstólum. Saksóknari krefst hið minnsta fjögurra ára fangelsisdóm yfir þremenningunum en verði þeir sakfelldir gætu þeir samt átt yfir höfði sér lengri dóm, að hámarki fimmtán ára fangelsi.
Skíðaslys Michael Schumacher Mest lesið Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Enski boltinn Kemur dómaranefnd til varnar og hnýtir í Jón og tvíburana Körfubolti Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Enski boltinn Sjáðu kinnhestinn sem felldi Liverpool og þrennu Mbappe Fótbolti Vilja ekki að merki þeirra sé á búningum Ísraelsliðsins Fótbolti Aftur tapar Liverpool Fótbolti Svaf í tuttugu tíma á dag eftir slysið Sport „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Íslenski boltinn Craig Pedersen heldur áfram með íslenska landsliðið Körfubolti Fékk óvart rautt spjald Enski boltinn Fleiri fréttir Segir ákvörðunina þá erfiðustu sem hann hafi tekið Tekur marga milljarða með sér og gæti snúið aftur með öðru liði Verstappen vann og Piastri úr leik á fyrsta hring Verstappen á ráspól eftir skrautlega tímatöku Norris fljótastur á síðustu æfingu í Baku Piastri sagt að hleypa Norris fram úr en Verstappen vann Verstappen á ráspól með hraðasta hring sögunnar Sjá meira