Enski boltinn

Benóný Breki fékk tæki­færi gegn Crys­tal Palace

Smári Jökull Jónsson skrifar
Benóný Breki er hér í búningi Stockport eftir að hafa leikið sínar fyrstu mínútur fyrir félagið.
Benóný Breki er hér í búningi Stockport eftir að hafa leikið sínar fyrstu mínútur fyrir félagið. Vísir/Getty

Benóný Breki Andrésson kom inn af varamannabekknum hjá Stockport County þegar liðið mætti Crystal Palace í enska bikarnum. Þrjú úrvalsdeildarfélög tryggðu sér sæti í næstu umferð keppninnar í dag.

Benóný Breki gekk til liðs við Stockport County nú um áramótin en félagið festi kaup á honum í síðasta mánuði. Hann var í leikmannahópi liðsins í fyrsta skipti í dag þegar liðið mætti úrvalsdeildarliði Crystal Palace á útivelli en Stockport leikur í þriðju efstu deild.

Það blés ekki byrlega fyrir gestunum í byrjun því Eberechi Eze kom Crystal Palace yfir strax á 4. mínútu leiksins. Palace var betri aðilinn í leiknum en Stockport átti sín augnablik inn á milli.

Benóný Breki hóf leikinn á varamannabekknum en kom inn á 77. mínútu en hvorki honum né félögum hans tókst að jafna metin. Crystal Palace marði því 1-0 sigur og er komið áfram í næstu umferð bikarsins.

Allt eftir bókinni

Ipswich átti aðeins þægilegri dag því liðið lagði Bristol Rovers 3-0 á heimavelli og komu öll mörk liðsins í fyrri hálfleik. Kalvin Philips, Jack Clarke og Jack Taylor skoruðu mörkin fyrir Ipswich.

Þá vann Newcastle 3-1 sigur á Bromley á heimavelli. Fjórðudeildarlið Bromley náði óvænt forystunni á 8. mínútu með marki frá Cameron Congreve. Lewis Miley jafnaði hins vegar metin fyrir Newcastle á 16. mínútu og staðan í hálfleik var 1-1.

Í upphafi síðari hálfleiks gerði Newcastle hins vegar út um leikinn með tveimur mörkum. Fyrst skoraði Anthony Gordon úr vítaspyrnu áður en William Osula bætti þriðja markinu við. Lokatölur 3-1 og Newcastle komið áfram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×