Kolbeinn er duglegur að prófa sig áfram í eldhúsinu ásamt kærustu hans Aldísi Amah Hamilton. Nýverið birti parið girnilegar myndir af kínóa prótein skál á Instagram en Kolbeinn deilir hér uppskriftinni með lesendum Lífsins.
Kínóa (e. Quinoa) prótein skál
„Stútfull af próteini, góðum kolvetnum, fitu, vítamínum og snefilefnum. Kínóa inniheldur til að mynda allar 9 amínósýrurnar sem líkaminn þarfnast, líkt og tófú. Kínóa er líka hátt í járni, magnesíum og zink svo eitthvað sé nefnt.
Baunirnar, salatið og kínóað er pakk fullt af trefjum. Tófúið, næringargerið, baunirnar og kínóað viðbætt færa okkur svo próteinríka, meinholla og seðjandi máltíð,“ segir Kolbeinn og bætir hér við uppskriftinni:
„1 dl af kínóa á móti 2 dl vatni í pott eða hrísgrjónapott og látið sjóða á meðan salatið er undirbúið (ég nota svart kínóa)
Olía á pönnu á miðlungshita
1 saxaður laukur, 2 saxaðir hvítlauksgeirar, matskeið af sesamfræjum ásamt teskeið af þurrkuðum chili (eða reyktri papriku fyrir viðkvæma) látið malla á pönnunni þar til laukurinn er gegnsær eða farinn að taka á sig gylltan lit
Hálfur rauðkálshaus skorinn niður í fína strimla og bætt út á pönnuna ásamt sambærilegu magni af spínati, brokkolí og papriku (eða það grænmeti sem til er í ísskápnum)
Hitinn á pönnunni hækkaður og þetta steikt saman ásamt dós af chili baunum
Kryddað með salt, pipar, reyktri papriku, kúmin og timian. Sirka teskeið af hverju kryddi fyrir sig
Hitinn lækkaður aftur á pönnunni. Quinoa hrært saman við þegar það er orðið soðið
Sett í skálar ásamt viðbættu guacamole, sósunni og slettu af salsa. Borið fram með kóríander og Súraldin kreist yfir. Gott að mylja síðan nachos flögur eða strá yfir hnetum eða þurrkuðum sojabaunum
Sósan:
Hálfur kubbur af Silki tófú (má líka vera venjulegt)
3-4 msk næringarger
3-4 msk salsasósa
1 tsk reykt paprika
1 tsk cumin
1 msk eplaedik
150 ml plöntumjólk eða kókosrjómi (mér finnst gott að nota kókosrjóma til að gera meira creamy)
Allt sett saman í blandara og þeytt.
Guacamole:
1-2 avókadó stöppuð saman með hálfu kreistu súraldin (lime), salt og pipar eftir smekk. Má auðvitað bæta við tómati, papriku og lauk en ég læt það vera þar sem nóg er af grænmeti í salatinu sjálfu