Formúla 1

Arf­taki Hamiltons fékk bíl­prófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tíma­bilsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Andrea Kimi Antonelli sáttur með bílprófið.
Andrea Kimi Antonelli sáttur með bílprófið.

Andrea Kimi Antonelli, sem tekur við af Lewis Hamilton hjá Mercedes, er kominn með bílpróf, sex vikum fyrir fyrstu keppni hans í Formúlu 1.

Mercedes greindi frá því á samfélagsmiðlum að hinn átján ára Antonelli hefði staðist venjulegt bílpróf annars vegar og hins vegar bílpróf sem hann þarf til að fá að keppa í Formúlu 1.

Þrátt fyrir ungan aldur er Antonelli vanur ökumaður en hann hefur æft stíft fyrir sitt fyrsta tímabil í Formúlu 1.

Antonelli var valinn eftirmaður Hamiltons hjá Mercedes eftir að ljóst var að sjöfaldi heimsmeistarinn myndi ganga í raðir Ferrari fyrir næsta tímabil. Antonelli og George Russell mynda ökuþórateymi Mercedes tímabilið 2025.

Mercedes endaði í 4. sæti í keppni bílasmiða á síðasta tímabili. Næsta tímabil hefst með keppni í Melbourne, Ástralíu 16. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×