Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA 9. sæti Bestu deildar karla í sumar.
deild karla KA Tengdar fréttir Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Vestra 10. sæti Bestu deildar karla í sumar. 26. mars 2025 10:03 Besta-spáin 2025: Í túninu heima Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Aftureldingu 11. sæti Bestu deildar karla í sumar. 25. mars 2025 10:00 Besta-spáin 2025: Drepþreyttir á deildaflakkinu Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍBV 12. sæti Bestu deildar karla í sumar. 24. mars 2025 10:00 Mest lesið Reiddist Guðjóni og hætti í landsliðinu: „Þér er ekki fyrirgefið fyrir svona“ Fótbolti Undrabarnið í aðalhlutverki í sýningu Spánverja Fótbolti Kerkez spilar ekki með Ungverjum: Sagður á leið til Liverpool að skrifa undir Enski boltinn Dæmdur 10-0 sigur og titillinn í höfn eftir mikið hneyksli Handbolti Sögðu danskri landsliðskonu að fara heim að vaska upp Fótbolti Sonur Bruno Fernandes mætti á æfingu hjá FH Enski boltinn Leikur Íslands og Brasilíu ekki í beinni á Stöð 2 Sport Fótbolti Gunnlaugur paraður með sænskri stelpu í Arnold Palmer bikarnum Golf Sjáðu Ronaldo skjóta Portúgal áfram í úrslitaleikinn Fótbolti Írskur smáklúbbur græðir meira en hálfan milljarð þökk sé Liverpool Enski boltinn
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild karla með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með leik Íslandsmeistara Breiðabliks og Aftureldingar laugardaginn 5. apríl. Íþróttadeild spáir KA 9. sæti Bestu deildarinnar í sumar og liðið fari niður um tvö sæti frá því í fyrra. Eftir 35 ára bið vann KA loks aftur stóran titil á síðasta tímabili þegar liðið vann Víking, 2-0, í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. Úrslitaleikurinn var vel upp settur hjá Hallgrími Jónassyni, þjálfara KA, og sigur Akureyringa var sanngjarn. Hallgrímur Jónasson var fyrsti þjálfari KA til að vinna stóran titil síðan Guðjón Þórðarson gerði liðið að Íslandsmeisturum 1989.vísir/diego Bikarsigurinn gerði það að verkum að sumarið 2024 hjá KA var frábært, sama hvað árangrinum í Bestu deildinni leið. KA endaði bara í sama sæti og sumarið 2023, því sjöunda, eftir afleita byrjun á tímabilinu. KA-menn vann nefnilega aðeins einn af fyrstu tíu leikjum sínum. Eftir það fóru þeir á mikið flug, voru ósigraðir í næstu tíu leikjum og kvöddu botnbaráttuna með afgerandi hætti. KA endaði svo efst í úrslitakeppni neðri hlutans; bestir af restinni. grafík/bjarki Líkt og fyrir síðasta tímabil hafa KA-menn verið rólegir í tíðinni á félagaskiptamarkaðnum í vetur. Þeir hafa hins vegar misst mikið og leikmannahópurinn er veikari en í fyrra. Mesti missirinn er af Daníel Hafsteinssyni og Sveini Margeiri Haukssyni sem fóru í Víking. Sá síðarnefndi var vissulega ekki með dágóðan hluta af síðasta tímabili en Daníel var þrusugóður í fyrra og skarð hans verður ekki fyllt svo glatt. Elfar Árni Aðalsteinsson, Darko Bulatovic og Harley Willard eru einnig farnir sem og markvörðurinn Kristijan Jajalo. grafík/bjarki Minna hefur verið að frétta af leikmannakomum hjá KA. Guðjón Ernir Hrafnkelsson kom frá ÍBV og Jóan Símun Edmundsen, sem lék með KA seinni hluta sumarsins 2023, er kominn aftur. Þá kom markvörðurinn Jonathan Rasheed en hann meiddist áður en hann náði að spila leik fyrir KA. Í staðinn kom danskur markvörður, William Tönning, en hann lék sinn fyrsta leik fyrir KA þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Þór í úrslitaleik Kjarnafæðismótsins í fyrradag. grafík/bjarki Akureyringar eru eflaust vongóðir um sæti í úrslitakeppni efri hlutans og það er ýmislegt sem hjálpar þeim í þeirri baráttu. KA er með feykigott miðvarðapar (Hans Viktor Guðmundsson og Ívar Örn Árnason), reyndan hóp og svo er Hallgrímur Mar Steingrímsson ennþá þarna. Svæsin veikindi þurfti til að hann missti loks af leikjum í fyrra - hann hafði spilað 160 leiki í röð í efstu deild, eða alla leiki KA á árunum 2017-23 - en var góður eftir að hann sneri aftur og endaði sem markahæsti leikmaður KA með níu mörk. Enn eitt árið leggja KA-menn mest sitt sóknartraust á Húsvíkinginn. Járnkarlinn Hallgrímur Mar Steingrímsson hefur verið besti leikmaður KA síðan liðið komst upp í efstu deild fyrir tæpum áratug.vísir/diego Sveitungi Hallgríms, Ásgeir Sigurgeirsson, skoraði átta mörk í fyrra og Viðar Örn Kjartansson sex. Hann kom skömmu fyrir mót í fyrra, var mjög lengi í gang en komst á ágætis skrið eftir því sem á tímabilið leið. KA-menn vonast væntanlega eftir meira og jafnara framlagi frá honum í sumar. Fallbarátta verður ekki á boðsstólnum fyrir norðan í sumar en leiðin upp í topp sex virðist vera orðin lengri og grýttari en í fyrra. Það er því bara spurning hvort bikarinn liti sumarið aftur gult og blátt á Brekkunni.
Besta-spáin 2025: Ætla að brosa aftur í mótslok Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Vestra 10. sæti Bestu deildar karla í sumar. 26. mars 2025 10:03
Besta-spáin 2025: Í túninu heima Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Aftureldingu 11. sæti Bestu deildar karla í sumar. 25. mars 2025 10:00
Besta-spáin 2025: Drepþreyttir á deildaflakkinu Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍBV 12. sæti Bestu deildar karla í sumar. 24. mars 2025 10:00