Fylgstu með þessum tíu á Masters Valur Páll Eiríksson skrifar 10. apríl 2025 13:18 Fylgist með þessum á Masters. Samsett/Vísir/Hjalti Masters-mótið í golfi hófst í dag er keppt verður um hinn fræga græna jakka. Vísir hefur tekið saman tíu af 95 kylfingum mótsins sem vert er að fylgjast vel með.
Bein útsending frá Masters-mótinu hefst klukkan 19:00 í kvöld. Sýnt verður frá mótinu daglega á Stöð 2 Sport 4. Allir kylfingarnir sem taka þátt eiga sína sögu. Bernhard Langer verður elstur, 67 ára, og tekur þátt á sínu síðasta móti í ár, 40 árum eftir að hann vann mótið fyrst. Fjallað hefur verið Angel Cabrera sem missti af þónokkrum Masters-mótum sökum þess að hann sat í fangelsi, og er ný búinn að fagna sigri á PGA-móti. Fylgjast má þó sérlega vel með þessum tíu kylfingum á Masters: 10. Jordan Spieth Jordan Spieth klæddi sig í græna jakkann fyrir áratug.Vísir/Getty Í ár eru tíu ár frá því að Spieth fagnaði sigri á Masters, árið 2015. Sá Spieth er ekki sá sami og við sjáum á brautinni í ár. Hann er áratug eldri, gengið misvel síðustu ár og á til að vera sveiflukenndur í spilamennsku. Hann hefur þó verið tvisvar á meðal þeirra fjögurra efstu á síðustu fjórum Masters-mótum. Áhugavert verður að sjá hvaða Spieth mætir til leiks í ár. 9. Ludvig Åberg Ludvig Åberg gat leikið með bros á vör á Masters-mótinu í fyrra.Getty/Maddie Meyer Sænski stuðboltinn sló í gegn í fyrra og lenti í öðru sæti í frumraun sinni á Augusta-vellinum. Það var jafnframt fyrsta risamótið á ferli hans. Hann hefur hins vegar verið í brasi, komst ekki í gegnum niðurskurð síðustu tvær vikur. Það er spurning hvort hann haldi slíku áfram eða geti byggt á árangurinn á Masters í fyrra. 8. Phil Mickelson Alltaf klár.Warren Little/Getty Images Aldrei sofa á Lefty. Mickelson hefur unnið mótið þrisvar og var annar á mótinu fyrir tveimur árum. Skiptar skoðanir eru á kauða en það fylgjast allir með Phil þegar hann mætir á völlinn. 7. Brooks Koepka Kaldhæðni örlaganna hagaði því þannig að LIV-kylfingurinn Brooks Koepka vann PGA-meistaramótið rétt rúmum tveimur vikum áður en tilkynnt var um samruna bakhjarla LIV og PGA-mótaraðarinnar fyrir tveimur árum síðan.Vísir/Getty Lenti í öðru sæti fyrir tveimur árum og vann svo PGA-meistaramótið sama ár. Er í mismiklu stuði á LIV-túrnum og stígur yfirleitt upp á stóra sviðinu. Komst í gegnum niðurskurð á öllum fjórum risamótum í fyrra en gekk verr þegar í helgina var komið. Getur hæglega gert vel. 6. Xander Schauffele Vann Opna breska í fyrra.EPA-EFE/ROBERT PERRY Er klár í slaginn og getur klárlega unnið að eigin sögn. Aðrir eru ekki eins vissir um meiðslastöðu kappans. Vann bæði PGA-meistaramótið og Opna breska í fyrra en spurningin er hvort við fáum meistara til leiks eða ryðgaðan meiðslapésa. 5. Jon Rahm Hann var í brasi á risamótunum í fyrra, blessaður.Matthew Maxey/Icon Sportswire via Getty Images Spilar glimrandi vel á LIV. En gekk agalega á risamótunum í fyrra. Átti titil að verja á Masters og lenti í 45. sæti. Komst ekki í gegnum niðurskurðinn á PGA-meistaramótinu og dró sig úr keppni á US Open. Mætir Rahmbo í hefndarhug? 4. Viktor Hovland Viktor Hovland er áhugaverður fír.Vísir/Getty Norsarinn knái. Skemmtilegur kylfingur og áhugaverður náungi, þó hann sé norskur. Vann Valspar-mótið nýlega þrátt fyrir að hafa sagt skömmu áður að honum fyndist hann hafa týnt sveiflunni. Ætlaði raunar ekkert að taka þátt, en vann svo bara. Finnur hann sveifluna um helgina? 3. Scottie Scheffler Ólympíumeistarinn mætir til leiks.Brendan Moran/Sportsfile via Getty Images Var einstaklega stöðugur og vann ítrekað mót á síðasta ári. Hann hefur þó ekki unnið á þessu ári, ennþá. Smá ryðgaður en þrátt fyrir það aldrei verið fyrir utan topp 25 á árinu. Og var í öðru sæti á Houston Open á dögunum. Scheffler er efstur á heimslistanum, á titil að verja og skyldi engan undra að fyrsti sigur ársins kæmi um helgina. 2. Bryson DeChambeau DeChambeau á til að stíga upp þegar á stóra sviðið er komið.Jared C. Tilton/Getty Images YouTube-kallinn. Öflugur á risamótunum í fyrra. Sjötta sæti á Masters, annað sæti á PGA og vann svo US Open. Misgóður á LIV en alls ekkert ólíklegt að hann stígi upp á stóra sviðinu, rétt eins og fyrrum erkióvinur hans Koepka. 1. Rory McIlroy Jæja Rory, hvenær tekst alslemman?Ken Murray/Icon Sportswire via Getty Images Kemur sama gamla romsan. McIlroy hefur ekki unnið risamót í áratug. En hann hefur unnið allt annað á meðan. Masters er eini risatitillinn sem hann á eftir til að ná í blessaða alslemmuna. Er komið að því? Hann hefur í það minnsta aldrei verið jafn ferskur að eigin sögn. Sýnt verður beint frá Masters-mótinu á Stöð 2 Sport 4 klukkan 19:00 í kvöld og annað kvöld. Mótinu verður þá enn betur fylgt eftir um helgina.
Masters-mótið Golf Tengdar fréttir Masters hefst í kvöld: Allra augu á Rory McIlroy Fyrsta risamót ársins, Masters, hefst á Augusta golfvellinum í kvöld. Biðinni er loksins lokið. Það verður klárlega hart barist um græna jakkann í ár. 10. apríl 2025 12:32 McIlroy segist aldrei hafa verið í jafn góðum gír fyrir Masters Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy segist aldrei hafa verið í jafn góðum gír fyrir Masters og núna. 9. apríl 2025 13:47 „Ég get algjörlega unnið Masters-mótið“ Xander Schauffele segist klár í slaginn fyrir komandi Masters-mót í golfi sem fram fer um helgina. Eftir frábært síðasta ár hefur hann átt í meiðslavandræðum á nýju ári. 8. apríl 2025 09:01 Skítaveður og æfingum frestað á Augusta Æfingum kylfinga fyrir komandi Masters-mót á Augusta National-vellinum í Georgíu-fylki hefur verið frestað vegna þrumuveðurs. Búast má við slæmu veðri í allan dag. 7. apríl 2025 15:17 Mest lesið Davíð Smári hættur fyrir vestan Íslenski boltinn Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn Íslenski boltinn Veittist að sautján ára mótherja sínum og hreytti í hann fúkyrðum Rafíþróttir Bjór kastað í konu McIlroy: „Þurfti að þola ótrúlegt magn af svívirðingum“ Golf Þrefaldur heimsmeistari í slagsmálum á kebabstað Sport „Ertu að horfa Donald Trump?“ Golf Opnar sig um djammið: „Hjálpaði mér ekki“ Enski boltinn Ekki búið að ræða við mögulega eftirmenn Amorim Fótbolti Sjáðu Elmar skora beint úr horni, tvennu Freds og þrennu Hermanns Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ertu að horfa Donald Trump?“ Bjór kastað í konu McIlroy: „Þurfti að þola ótrúlegt magn af svívirðingum“ Evrópa marði Ryder-bikarinn á dramatískan hátt Bandaríkin í brekku en reyna að klóra í bakkann Grínisti hættir og biðst afsökunar á að hafa byrjað níðsöngva í garð Rory Fyrirliði Bandaríkjanna ver gjammandi stuðningsmennina Evrópa með afgerandi forystu fyrir lokadaginn Sagði áhorfanda að naglhalda kjafti Bandaríkin með bakið upp við vegg Fyrirliði Evrópu greinir frá því hvað Trump sagði við hann Trump missir ekki trúna: „Við munum klára þetta“ Bara einn spáði Bandaríkjunum sigri og annar vissi ekkert um Ryder-bikarinn „Keppni sem allir golfáhugamenn elska“ Svona hefst Ryder-bikarinn: „Viljum ná öflugri byrjun“ Þora ekki að horfa á strákinn vegna fúkyrðaflaums Fyrirliði Evrópu baunar á Bandaríkin: „Drifnir áfram af einhverju sem peningar geta ekki keypt“ Stjörnustjarfur þegar hann sá Zola á Ryder bikarnum Varar við áhorfendum á Ryder Cup: „Hey Rahmbo, hvar er Ozempicið?“ Bandarísku kylfingarnir gefa Ryder-launin eftir gagnrýni Gunnlaugur Árni næstefstur og verður á Golf Channel í kvöld Rosalegt prump samherja setti Hatton út af laginu Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana Vaknaði útataður í eigin ælu eftir að hafa komist í Ryder-lið Evrópu Andrea tók sjötta sætið Stórsér á stjörnunni eftir leikfang dótturinnar Eina breytingin á Ryderliðinu var að skipta um tvíbura Stórkostleg spilamennska hjá Haraldi í Svíþjóð Stjörnurnar samglöddust Fleetwood sem vann loks í 164. tilraun Arnar og Bjarki unnu golfmót Fluga hjálpaði kúlunni ofan í holuna Sjá meira
Masters hefst í kvöld: Allra augu á Rory McIlroy Fyrsta risamót ársins, Masters, hefst á Augusta golfvellinum í kvöld. Biðinni er loksins lokið. Það verður klárlega hart barist um græna jakkann í ár. 10. apríl 2025 12:32
McIlroy segist aldrei hafa verið í jafn góðum gír fyrir Masters Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy segist aldrei hafa verið í jafn góðum gír fyrir Masters og núna. 9. apríl 2025 13:47
„Ég get algjörlega unnið Masters-mótið“ Xander Schauffele segist klár í slaginn fyrir komandi Masters-mót í golfi sem fram fer um helgina. Eftir frábært síðasta ár hefur hann átt í meiðslavandræðum á nýju ári. 8. apríl 2025 09:01
Skítaveður og æfingum frestað á Augusta Æfingum kylfinga fyrir komandi Masters-mót á Augusta National-vellinum í Georgíu-fylki hefur verið frestað vegna þrumuveðurs. Búast má við slæmu veðri í allan dag. 7. apríl 2025 15:17
Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn Íslenski boltinn
Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-3 | Valdimar Þór fór langleiðina með að tryggja titilinn Íslenski boltinn