Golf

Fetar Spieth í fót­spor McIlroy?

Valur Páll Eiríksson skrifar
Jordan Spieth vann tíu PGA-mót, þar af þrjú risamót, á þremur árum en hefur síðan aðeins tvisvar fagnað sigri á PGA-mótaröðinni á sjö árum.
Jordan Spieth vann tíu PGA-mót, þar af þrjú risamót, á þremur árum en hefur síðan aðeins tvisvar fagnað sigri á PGA-mótaröðinni á sjö árum. Kevin C. Cox/Getty Images

Rúmur mánuður er síðan Rory McIlroy vann sér inn langþráðan grænan jakka með því að fagna sigri á Masters-mótinu í golfi. Með sigrinum kom McIlroy sér einnig í fámennan hóp. Hóp sem Jordan Spieth vonast til að komast í á komandi PGA-meistaramóti.

Tíu ár eru síðan Jordan Spieth spratt með sprengju fram á sjónarsviðið í alþjóðlegu golfi. Hann vann bæði Masters-mótið og US Open árið 2015 og komst nærri sigri á bæði Opna breska og PGA-meistaramótinu.

Honum tókst hins vegar að vinna Opna breska meistaramótið árið 2017 og hafði þá unnið ellefu mót á PGA-mótaröðinni. Það hefur hins vegar hægst á kappanum síðan. Frá því að sigurinn vannst í Bretlandi hafa aðeins tvö mót unnist á bestu mótaröð heims, í apríl 2021 og síðast í apríl 2022.

Erlendir miðlar hafa hins vegar beint sviðsljósinu að Spieth síðustu daga. Hann hefur leikið ágætlega að undanförnu, varð fjórtándi á Masters-mótinu, átjándi á RBC-Heritage-mótinu helgina eftir og fjórði á CJ Cup í byrjun maí.

Mikið er rætt um McIlroy, sem mætir fullur sjálftrausts til leiks á PGA-meistaramótið, og á völl sem er í miklu uppáhaldi hjá honum – Quail Hollow í Norður-Karólínu – og sagður líklegur til að vinna annað risamótið í röð. Þar með myndi hann feta í fótspor Spieth sem vann fyrstu tvö risamót ársins fyrir áratug.

Scottie Scheffler mætir til leiks í miklu stuði, en á áðurnefndu CJ Cup (þar sem Spieth var í fjórða á 19 undir pari) vann Scheffler mótið á 31 höggi undir pari vallar, átta höggum á undan næsta manni. Bryson DeChambeau er einnig líklegur til afreka en hann er farinn að vinna aftur á LIV-mótaröðinni og var einum slökum lokadegi frá því að hafa betur gegn McIlroy á Masters-mótinu fyrir mánuði síðan.

Það skyldi þó aldrei vera að Spieth myndi bætast í hóp manna sem hafa unnið alslemmuna. Hann er á uppleið í byrjun árs og er eflaust ákveðinn í því að láta ná áfanganum.

Bein útsending frá PGA-meistaramótinu hefst klukkan 12:00 á Vodafone Sport á morgun og mun standa yfir til klukkan 23:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×