Í fréttatilkynningu þess efnis segir að að Play verði einnig með áætlunarflug til Marrakess í Marokkó.
Svipað veður og á Tenerife
Flugtíminn til Agadir sé um fimm og hálf klukkustund en borgin liggi við Atlantshafið og veðurfar þar sé því svipað og á Tenerife. Íbúar Agadir upplifi að jafnaði 300 sólardaga á ári en þar megi finna gylltar strendur og golfvelli á heimsmælikvarða.
Agadir sé vinsæll áfangastaður sólþyrstra íbúa Evrópu yfir vetrartímann og sé afar nútímaleg og vinaleg. Borgin hafi farið í gegnum talsverða endurnýjun þar sem markmiðið hafi verið að skapa afslappaða upplifun fyrir íbúa og þá sem heimsækja Agadir.
Sannfærður um að fólk flykkist til Agadir
Play sé nú með sextán sólarlandaáfangastaði í sölu en þar á meðal séu átta á Spáni, fjórir í Portúgal og einnig Split í Króatíu og Antalya í Tyrklandi ásamt fyrrnefndum Agadir og Marrakess.
„Það er stefnan okkar hjá PLAY að bjóða Íslendingum upp á glæsilegt úrval sólarlandaáfangastaða og Agadir mun engan svíkja. Hvort sem leitað er eftir afslöppun á gylltum ströndum eða að njóta sín á glæsilegum golfvöllum, þá er er Agadir frábær kostur. Flugáætlunin okkar til borgarinnar mun ná yfir jólin í ár og páska á næsta ári og veturinn þar á milli og ég er sannfærður um að margir muni nýta þetta einstaka tækifæri til að upplifa þessa mögnuðu borg,“ er haft eftir Einari Erni Ólafssyni, forstjóra Play.