Heimamenn í Porto höfðu yfirhöndina í fyrri hálfleik og Þorsteinn Leó skoraði sjö mörk fyrir liðið fyrir hlé. Porto leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 15-13.
Eftir hlé voru það hins vegar gestirnir sem reyndust sterkari. Orri og félagar í Porto náðu forystunni snemma eftir hálfleikinn og héldu henni allt til loka. Lokatölur 27-28.
Orri skoraði fimm mörk fyrir Porto í dag, en Þorsteinn Leó var markahæsti maður vallarins með átta mörk. Það dugði hins vegar ekki til.
Orri og félagar eru því bæði portúgalskir meistarar og portúgalskir bikarmeistarar.