Bíó og sjónvarp

Ólafur Darri og Hera Hilmars halda á­fram að heilla heiminn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að vekja athygli á heimsvísu fyrir leik sinn.
Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að vekja athygli á heimsvísu fyrir leik sinn. Mynd/Camilla Camalini

Íslenska spennuþáttaröðin Reykjavík Fusion heldur áfram að vekja athygli á alþjóðavettvangi eftir glæsilega heimsfrumsýningu á Canneseries-hátíðinni í apríl. Þættirnir hafa fengið lof fyrir frumlega nálgun og sterka frammistöðu aðalleikara.

Í tilkynningu frá íslenska kvikmyndaframleiðslufyrirtækinu ACT4 kemur fram að þáttaröðin hafi verið sýnd á fjölmörgum kvikmynda- og sjónvarpshátíðum um heim allan, þar á meðal Busan International Film Festival í Suður-Kóreu og SerienCamp í Þýskalandi undanfarið. Þá eru fleiri sýningar framundan í sumar og haust.

Yfirframleiðendur þáttaraðarinnar hjá ACT4 eru Jónas Margeir Ingólfsson, Birkir Blær Ingólfsson og Milla Ósk Magnúsdóttir. Þáttaröðin er framleidd í samstarfi við Símann, Skot Productions, Arte France og Wild Sheep Content. Verkefnið hefur fengið mikla athygli fyrir kraftmikla frásögn sem sameinar glæpasögu, matarmenningu og dramatíska persónusköpun.

Reykjavik Fusion er leikstýrt af Samúel Bjarka Péturssyni og Gunnari Páli Ólafssyni – sem hafa hlotið lof fyrir eftirminnilegar auglýsingar fyrir vörumerki á borð við Mercedes-Benz, McDonald’s og Disney en þetta er í fyrsta skipti sem þeir takast á við leikið sjónvarpsefni.

Tvær stórstjörnur í eina sæng

Meðal þeirra eru leikararnir Ólafur Darri Ólafsson og Hera Hilmarsdóttir, sem leika saman í fyrsta sinn á skjánum.

„Það er búið að vera mjög gaman að sjá hvað það er mikill áhugi á þáttaröðinni erlendis,” segir Ólafur Darri Ólafsson aðalleikari og yfirframleiðandi þáttanna.

„Það eru fjölmargir blaðamenn búnir að sjá fyrstu tvo þættina og maður hefur fundið fyrir mjög jákvæðum viðbrögðum. Við hjá ACT4 erum mjög stolt af þessari fyrstu þáttaröð okkar sem við höfum lagt líf og sál í að gera sem best úr garði. Og Samúel og Gunnar hafa svo sannarlega staðið undir þeim væntingum sem við gerðum til þeirra og skilað okkur frábæru verki.”

Ólafur Darri og Hera HilmarsdóttirMynd/Studio Vigerie

Verkefnið hefur fengið mikla athygli fyrir kraftmikla frásögn sem sameinar glæpasögu, matarmenningu og dramatíska persónusköpun. 

Frá frumsýningunni í Cannes hefur teymi þáttanna ferðast víða með sýningar og sérstaka viðburði tengda þáttunum, þar sem myndir frá rauða dreglinum, Q&A-viðburðum og spjalli við áhorfendur hafa fangað áhuga fjölmiðla og áhorfenda.

Meðfylgjandi eru myndir frá viðburðum undanfarnar vikur og mánuði

Frá vinsti: Gunnar Páll Ólafsson, Hörður Rúnarsson, Ólafur Darri Ólafsson, Hera Hilmisdóttir, Samúel Bjarki PéturssonMynd/Camilla Camalini
Mynd/Camille Fermon
Mynd/OlivierVigerie
Mynd/OlivierVigerie
Mynd/Jenrick Mielke
Mynd/Jenrick Mielke
Mynd/JHKLINGEL HÖFER
Mynd/JHKLINGEL HÖFER
Mynd/JHKLINGEL HÖFER





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.