Woody Allen aðalnúmerið hjá Rússum Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. ágúst 2025 15:14 Woody Allen mun koma fram á sérviðburði á hátíðinni þar sem hann ræðir um ferilinn og kvikmyndir. EPA Leikstjórinn Woody Allen, sem hefur ekki átt upp á dekk síðastliðin ár, hefur ekki verið slaufað algjörlega því hann verður aðalnúmerið á alþjóðlegri kvikmyndaviku í Moskvu sem fer fram dagana 23. til 27. ágúst.
Þetta kemur fram í frétt netmiðilsins Moscow Times sem byggir á yfirlýsingu frá hátíðinni. Þar segir að von sé á rúmlega áttatíu alþjóðlegum gestum frá meira en tuttugu löndum, þar á meðal Kína, Indlandi, Tyrklandi, Sádí-Arabíu, Egyptalandi, Brasilíu, Mexíkó, Bandaríkjunum, Suður-Kóreu og Íran, á hátíðina. Woody Allen, sem er orðinn 89 ára og hefur leikstýrt um fimmtíu myndum á rúmlega sextíu ára ferli, verður sérstakur heiðursgestur á hátíðinni en mun þó aðeins koma fram gegnum fjarfundarbúnað. Hann verður til tals í umræðupanel sem rússneski kvikmyndagerðarmaðurinn Fyodor Bondarchuk mun stýra. Viðburðinum með Allen er lýst sem „fyrirlestrar-fundi“ þar sem rætt verður um kvikmyndir, lífið og fleira á hreinskilninslegan máta. Síðasta mynd Allen, Coup de Chance, kom út árið 2023 og var hans fimmtugasta á ferlinum. Sjá: Lýsir því hvernig umdeilt samband við Woody Allen hófst og segir hann fórnarlamb #Metoo Segja má að Allen hafi verið endanlega slaufað í kjölfar #MeToo-bylgjunnar árið 2017. Þremur árum fyrir það hafði Dylan Farrow, dóttir Allen og Miu Farrow, rifjað upp ásakanir í garð hans um að hann hefði misnotað hana kynferðislega þegar hún var barn. Emir Kusturica var boðið heim til Vladímírs Pútín árið 2023.EPA Aðrir heiðursgestir á hátíðinni eru serbníski leikstjórinn Emir Kusturica, sem hefur tvisvar unnið Gullpálmann fyrir When Father Was Away on Business (1985) og Underground (1995), og bandaríski leikarinn og bardagalistamaðurinn Mark Dacascos, sem á að baki fjörutíu ára kvikmyndaferil og lék meðal annars í John Wick 3 —Parabellum (2019). Kusturica hefur í mörg ár verið tengdur Rússlandi, hann hlaut árið 2016 sérstaka „vinskaparorðu“ frá Vladímír Pútín Rússlandsforseta og er reglulegur gestur á opinberum viðburðum ríkisins.
Rússland Bíó og sjónvarp Mál Woody Allen Mest lesið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira