Golf

Gunn­laugur Árni næstefstur og verður á Golf Channel í kvöld

Sindri Sverrisson skrifar
Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram á uppleið.
Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram á uppleið. Getty/Aitor Alcalde

Gunnlaugur Árni Sveinsson heldur áfram að hækka sig á heimslista áhugamanna í golfi og er að nálgast topp tíu listann, eftir frábært mót í Illionis í gær. Hann verður svo í beinni útsendingu á Golf Channel í kvöld.

Gunnlaugur Árni endaði í 2. sæti á Jackson T. Stephens Cup í gær eftir að hafa leikið hringina þrjá á samtals fimm höggum undir pari, tveimur höggum á eftir William Sides úr SMU.

Á mótinu voru kylfingar úr sex af sterkari skólum bandaríska háskólagolfsins, en Gunnlaugur Árni keppir fyrir Louisiana State University.

Gunnlaugur lék frábært golf, eftir að hafa fengið þrjá skolla á fyrstu tíu holum fyrsta hrings, því hann fékk aðeins einn skolla á þeim 44 holum sem eftir voru. Á öðrum hringnum lék hann á sex höggum undir pari, tapaði ekki höggi, og átti enginn betri hring á mótinu.

Skóli Gunnlaugs vann svo liðakeppnina, þar sem bestu samanlögðu skor liðsins töldu á hverjum degi.

Í dag mætast efstu tvö liðin svo í úrslitaleik mótsins en það eru LSU og North Carolina. Fimm kylfingar eru í hvoru liði og spilar hver þeirra tvímenning, og mun Gunnlaugur Árni mæta Bandaríkjamanninum Keaton Vo sem lék best allra úr North Carolina skólanum og endaði aðeins höggi á eftir Gunnlaugi.

Golfsamband Íslands bendir á að úrslitaleikurinn verði í beinni útsendingu á Golf Channel.

Gunnlaugur Árni er í 14. sæti heimslista áhugamanna en mun líklega fara upp í 11. eða 12. sæti eftir árangurinn í Illinois.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×