Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Atli Ísleifsson skrifar 8. desember 2025 10:44 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Egill Icelandair flutti alls 347 þúsund farþega í nóvember sem er aukning um 15 prósent milli ára. Nýliðinn nóvembermánuður er sá stærsti í sögu Icelandair.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Þar segir að vöxturinn hafi verið mikill á markaðnum frá Íslandi, þar sem farþegafjöldi hafi aukist um 25 prósent milli ára, og á tengimarkaðinum um Íslandi þar sem aukningin hafi verið 18 prósent. „Í mánuðinum voru 31% farþega á leið til Íslands, 20% frá Íslandi, 42% voru tengifarþegar og 6% ferðuðust innanlands. Sætanýting nam 83,5% og stundvísi var framúrskarandi, 88,8%, og jókst um 4,1 prósentustig samanborið við síðasta ár. Samkvæmt Cirium Analytics var Icelandair stundvísasta flugfélagið í Evrópu í nóvember, en þetta er í fimmta skipti sem félagið hlýtur þessa viðurkenningu á árinu 2025. Það sem af er ári hafa 4,7 milljónir farþega flogið með Icelandair, 8% fleiri en á sama tímabili í fyrra. Seldum blokktímar í leiguflugsstarfsemi félagsins fækkaði um 3% á milli ára. Fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, drógust saman um 10% sem skýrist af minni fiskútflutningi en á sama tíma á síðasta ári. Kolefnislosun á hvern tonnkílómetra dróst saman um 1%, vegna hærra hlutfalls eyðslugrennri flugvéla í flotanum,“ segir í tilkynningunni. Sá stærsti í sögunni Haft er eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að nýliðinn nóvember hafi verið sá stærsti í sögu Icelandair sem endurspegli áherslu félagsins á að draga úr árstíðasveiflu og byggja upp eftirspurn utan háannatíma. „Við erum sérstaklega ánægð með að fjölgun farþega var umtalsvert meiri en aukning framboðs, sem skilaði met sætanýtingu í nóvember. Þar að auki var stundvísi framúrskarandi en við vorum stundvísasta félagið í Evrópu í fimmta sinn á þessu ári. Þessar tölur eru til marks um styrk og áreiðanleika leiðakerfisins okkar og frábæra vinnu starfsfólks,“ segir Bogi Nils.
Icelandair Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Kauphöllin Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira