Handbolti

Á hækjum á milli leikja og þoldi sí­fellt verri sárs­auka

Sindri Sverrisson skrifar
Maren Aardahl lét ekki sitt eftir í varnarleik Noregs á HM þrátt fyrir mikinn verk í hælnum.
Maren Aardahl lét ekki sitt eftir í varnarleik Noregs á HM þrátt fyrir mikinn verk í hælnum. Getty/Federico Gambarini

Ein af hetjunum úr norska kvennalandsliðinu í handbolta sem varð heimsmeistari á sunnudaginn er Maren Aardahl sem með hverjum leik á mótinu þurfti að þola sífellt verri sársauka.

Aardahl vildi ekkert vera að ræða um meiðsli sín á meðan á mótinu stóð en norskir fjölmiðlar höfðu tekið eftir því að hún haltraði um blaðamannasvæðið eftir sigurinn gegn Svartfellingum í 8-liða úrslitum. Í ljós kom að hún hafði verið að glíma við slíka verki í hælnum að hún gekk um á hækjum á hóteli norska liðsins á milli leikja.

Allt reynt til að deyfa sársaukann

„Ég er frekar aum í hælnum. Við höfum gert allt sem við getum til að deyfa sársaukann,“ sagði Aardahl við TV 2.

„Við höfum notað ýmsar tegundir af teipi og púðum. Svo hef ég gengið um á hækjum á hótelinu til að minnka álagið á fótinn,“ sagði Aardahl.

Hún segir ljóst að ef um leiki með félagsliði hefði verið að ræða þá hefði hún hvílt hælinn. Hún var hins vegar með allt mótið, þar á meðal í 23-20 sigrinum gegn Þýskalandi í úrslitaleiknum þó að þar fengi hún reyndar lítið að spila.

„Hún þolir mikið álag“

„Það sýndi sig kannski svolítið í dag að ég var ekki alveg með á nótunum þegar sóknarleikur þeirra var sem hraðastur. Þetta hefur versnað og versnað. Mér finnst við hafa gert vel í að deyfa þetta og gera það besta úr aðstæðunum. Það dugði eins lengi og það gerði, og ég er mjög ánægð,“ sagði Aardahl stolt við NRK.

Landsliðsþjálfarinn Ole Gustav Gjekstad, arftaki Þóris Hergeirssonar, var að sjálfsögðu stoltur af sínum leikmanni:

„Hún þolir mikið álag,“ sagði Gjekstad við TV 2.

Aardahl og stöllur í norska liðinu gátu svo fagnað vel enn einum titlinum sem liðið vinnur.

„Maður er svo þakklátur fyrir hvert einasta gull. Ég held að það skilgreini landsliðið okkar. Við erum jafn þakklátar í hvert skipti og tökum því aldrei sem sjálfsögðum hlut,“ sagði Aardahl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×